Hærri skattar, töpuð tækifæri?
%20(1920%20x%201080%20px).png)
Hærri skattar, töpuð tækifæri? er yfirskrift viðburðar sem Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu standa fyrir þann 14. september næstkomandi.
Hvar stendur íslenskt fjármögnunarumhverfi og í hvaða átt stefnir það? Hvaða áhrif hafa skattar, regluverk og aðgerðir stjórnvalda í þeim efnum? Hvar liggja framtíðartækifærin til að fjármagna íslenskt atvinnulíf í átt til bættra lífskjara? Hversu mikil áhrif hefur fyrirsjáanleiki í skattlagningu og reglusetningu á samkeppnishæfni Íslands? Þessum spurningum og mörgum fleiri verður velt upp á ráðstefnunni auk þess að fjallað verður um skatta á íslenska banka í alþjóðlegum samanburði.
Fyrirlesarar á fundinum eru eftirfarandi:
- Lars Christensen, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Ipace.
- Lev Ratnoski, hagfræðingur hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
- Dr. Gunnar Haraldsson, hagfræðingur og stofnandi Intellecon.
- Reynir Stefán Gylfason, endurskoðandi og meðeigandi KPMG.
Þar að auki verða pallborðsumræður á fundinum þar sem lykilfólk úr íslensku atvinnulífi og stjórnmálum mun fara yfir stöðuna.
Fundarstjóri verður Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF.
Fundurinn hefst kl. 9 í Smárabíói, mánudaginn 14. september. Húsið opnar kl. 8:30. Fundurinn er opinn öllum en skráning hér að neðan er nauðsynleg.