Leiðir til að efla hlutabréfamarkaðinn

Leiðir til að efla hlutabréfamarkaðinn er yfirskrift ráðstefnu sem fer fram fimmtudaginn 6. nóvember í Norðurljósum, Hörpu frá 13:30-16:00. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) og Nasdaq Iceland standa að ráðstefnunni.

Hvernig stendur íslenskur hlutabréfamarkaður í alþjóðlegum samanburði og hvaða leiðir eru færar til að efla hlutabréfamarkaðinn? Hvað getum við lært af reynslu nágrannaþjóða okkar, sér í lagi Svía í þeim efnum? Leitast verður við að svara þessum spurningum og mörgum fleiri á ráðstefnunni. 

Þá verða kynntar niðurstöður könnunar Gallup um viðhorf almennings gagnvart fjárfestingum og hlutabréfakaupum. 

Eftirfarandi koma fram á ráðstefnunni:

  • Adam Kostyál, forstjóri Nasdaq Stockholm og framkvæmdastjóri skráninga Nasdaq í Evrópu. 
  • Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
  • Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.
  • Hafsteinn Hauksson, aðalhagfræðingur Kviku banka.
  • Heiðar Guðjónsson, fjárfestir.
  • Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF.
  • Íris Björk Hreinsdóttir, yfirlögfræðingur SFF.
  • Kristín Hrönn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Fjárfesta og fyrirtækja hjá Íslandsbanka.
  • Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
  • Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland.
  • Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs.
  • Snædís Ögn Flosadóttir, forstöðumaður á mörkuðum hjá Arion banka.
  • Tanya Zharov, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Alvotech.
  • Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá.

Boðið verður upp á léttar veitingar. Nánari dagskrá kynnt þegar nær dregur.

Skráning hér: