Um­hverf­is­dag­ur at­vinnu­lífs­ins 2026

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026 verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn 27. október undir yfirskriftinni Sérstaða Íslands. Fundurinn fer fram á Hótel Reykjavik Grand og stendur yfir frá kl. 13:00 - 15:15. Húsið opnar kl. 12:30. Hér er hægt að skrá sig á viðburðinn.

Dagskrá

  • Opnunarávarp
    Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA
  • Pallborðsumræður
    Frá Íslandi til Brussel – sérstaða, hagsmunir og áhrif
  • Afhending Umhverfisverðlauna atvinnulífsins
    Þrjú fyrirtæki sem skara fram úr í tilnefningum verða heiðruð fyrir góðan árangur í umhverfismálum og Umhverfisfyrirtæki ársins 2026 verðlaunað á deginum.

Stutt kaffihlé

Málstofur – velja þarf málstofu við skráningu

1. Sérstaða íslenskra aðstæðna í ETS-kerfinu

ETS-kerfið er hluti af sameiginlegu evrópsku regluverki á sviði loftslagsmála. Á málstofunni verður fjallað um mikilvægi þess að áhrif og framkvæmd hins sameiginlega regluverks taki mið af íslenskum aðstæðum á borð við landfræðilega legu, fámenni og mikilvægi flugs og sjóflutninga. Sjónum verður beint að þeirri vinnu sem hefur farið fram við að koma sérstöðu Íslands á framfæri fyrir flug og sjóflutninga og tryggja að framkvæmd kerfisins taki mið af aðstæðum hér á landi og samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs. Jafnframt verður fjallað um mikilvægi áframhaldandi hagsmunagæslu og eftirfylgni, bæði við þróun regluverksins og framkvæmd þess hér á landi.

2. PPWR – innleiðing umbúðaregluverks ESB í íslensku samhengi

Ný reglugerð ESB um umbúðir og umbúðaúrgang (PPWR) mun hafa víðtæk áhrif á atvinnulíf í Evrópu. En eru áhrifin þau sömu á Íslandi? Á málstofunni verður fjallað um áhrif PPWR á íslenskt atvinnulíf, meðal annars smásölu, innflutning og útflutning, með sérstakri áherslu á þær áskoranir sem kunna að felast í sérstöðu Íslands. Einnig verður rætt hvernig íslenskum hagsmunum og sjónarmiðum hefur verið komið á framfæri við mótun regluverksins í Evrópu.

3. Íslensk sérstaða í orkumálum

Aðgengi að grænni og samkeppnishæfri orku hefur lengi verið ein af sérstöðum Íslands og skapað grundvöll fyrir orkusækinn iðnað. Nú eru miklar breytingar að verða á orku- og iðnaðarstefnu Evrópu sem geta haft áhrif á samkeppnisstöðu Íslands. Fjallað verður um þessa þróun og snert meðal annars á CBAM, breyttu orkuregluverki og aðgerðum ESB til að styrkja evrópskan iðnað. Hvaða áhrif hefur þróunin á íslenskt atvinnulíf? Verður íslensk græn orka verðmætari og hvernig getur Ísland nýtt sérstöðu sína í breyttu evrópsku landslagi?

Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar og tengslamyndun.

Dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.

Hér er hægt að skrá sig.