Umsagnir
Það er til mikils að vinna að innleiðing frá T+2 yfir í T+1 gangi hnökralaust fyrir sig hérlendis
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu skiluðu umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafrænna eignaskráningu fjármálagerninga eða CSDR Refit og T+1. SFF ítreka að leggja skuli áherslu á vandaða innleiðingu evrópsks regluverks og telja öflugt og tímanlegt samráð stjórnvalda um lagafrumvörp mikilvægt og jákvætt. SFF fagna þeim sjónarmiðum sem fram hafa komið við vinnslu málsins um að breytingarnar krefjist tímanlegs undirbúnings og samhæfingar þvert á markaðinn. SFF hvetja til þess að aðkoma haghafa í innleiðingarvinnunni verði sem fyrst. Það er til mikils að vinna að innleiðing frá T+1 yfir í T+2 gangi hnökralaust fyrir sig hérlendis.
Umsögn um frumvarp til laga um réttindavernd fatlaðs fólks
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu hafa skilað umsögn um frumvarp til laga um réttindavernd fatlaðs fólks. Samtökin fagna jákvæðum markmiðum fyrirhugaðrar lagasetningar um að tryggja fötluðu fólki raunveruleg yfirráð yfir fjármálum sínum en telja þó nauðsynlegt að benda á að frumvarpsdrögin þarfnast breytinga svo tilætluðum markmiðum verði náð.
Rýni á fjárfestingum erlendra aðila
SFF hafa ítrekað bent á mikilvægi þess að hér sé löggjöf á fjármálamarkaði ekki blýhúðuð eða settar séríslenskar lagareglur, né gengið lengra í reglusetningu en í löndunum í kringum okkur. Ríkisstjórnin hefur boðað einföldun hérlendis, sem er í takt við það sem er að gerast á Evrópuvettvangi og horfa verður á frumvarp um rýni á fjárfestingum erlendra aðila í því samhengi.
Drög að frumvarpi til laga um varfærniskröfur verðbréfafyrirtækja
SFF telja að með því að afnema þær reglur sem ganga lengra en nauðsyn ber til, og með einföldun löggjafar almennt, skapist meira rými fyrir því að innlend fjármálaþjónusta geti áfram stuðlað að bættum lífskjörum og aukinni framleiðni hér á landi.
Þingmálaskrá og umsagnir SFF frá september 2025 til janúar 2026
SFF fylgjast með þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar og þeim lagafrumvörpum sem geta haft áhrif á starfsemi aðildarfélaga. Í því felst að yfirfara efni mála og koma sjónarmiðum SFF á framfæri með umsögnum í samráðsgátt, til Alþingis og Seðlabankans eða annarra stjórnvalda eftir atvikum.
Umsögn um drög að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1240/2015 um framkvæmd áreiðanleikakannana vegna upplýsingaöflunar á sviði skattamála
SFF skiluðu umsögn í gegnum samráðsgátt stjórnvalda um drög að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1240/2015 um framkvæmd áreiðanleikakannana vegna upplýsingaöflunar á sviði skattamála. Breytingarnar eru lagðar til með það fyrir augum að samræma CRS-regluverk alþjóðlegum skuldbindingum um sjálfvirk upplýsingaskipti í skattamálum, einkum hvað varðar upplýsingaöflun og miðlun frá fjármálastofnunum.
Umsögn um áform um innleiðingu reglugerðar (ESB) 2025/2075, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 909/2014 að því er varðar styttingu uppgjörstíma viðskipta með fjármálagerninga (T+1).
SFF skiluðu umsögn í gegnum samráðsgátt um áform um innleiðingu reglugerðar (ESB) 2025/2075, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 909/2014 að því er varðar styttingu uppgjörstíma viðskipta með fjármálagerninga (T+1).
Umsögn SFF um drög að Atvinnustefnu Íslands – Vaxtarplan til 2035
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu hafa skilað umsögn um drög að atvinnustefnu til ársins 2035 í gegnum samráðsgátt stjórnvalda. SFF leggja áherslu á að fjármálaþjónustumarkaður er mikilvægur og nauðsynlegur hlekkur í atvinnulífinu. SFF telja að rými sé til þess að veita þessari mikilvægu stoð atvinnulífsins meira vægi í stefnunni. Ábendingar samtakanna lúta einkum að umgjörð um fjármálaþjónustu og með hvaða hætti fjármálaþjónusta getur stutt við markmið stjórnvalda.