Umsögn SFF um áformað frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 70/2020 og lögum nr. 98/1999
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu skiluðu umsögn um áformaðar breytingar á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja nr. 70/2020 og laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, nr. 98/1999, sem fjármála- og efnahagsráðuneytið. Með áformuðum lagabreytingum er fyrirhugað að innleiða reglugerðir (ESB) 2023/662 og (ESB) 2024/895 sem breyta reglugerð (ESB) nr. 2015/63, með tilvísunaraðferð, auka skilvirkni, styrkja innviði og viðbragðsgetu íslensks fjármálamarkaðar við áföllum.
Ábendingar SFF
• Hugtakið innstæða: Áformað er að samræma skilgreiningu hugtaksins „innstæða“ í 4. mgr. 9. gr. laga nr. 98/1999 skilgreiningu tilskipunarinnar. SFF telja samræminguna jákvæða.
• Frestur Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands: SFF lögðu áherslu á að tiltekinn frestur FME yrði í samræmi við reglur ESB.
• Upplýsingagjöf: SFF lögðu áherslu á að ekki yrði gengið lengra í upplýsingaöflun en nauðsyn stæði til og horft yrði til mikilvægis upplýsingaöryggis o.fl.
• Tímabundið háar innstæður: SFF bentu á að ef til lögfestingar á aukinni vernd tímabundinna, hárra innstæðna kemur, þurfi að kveða með skýrum og afdráttarlausum hætti á um fjárhæðarmörk, verndartíma og gæta að því að gildissviðið verði ekki rýmra en kveðið er á um í tilskipuninni.
• Aðlögunartími: SFF lögðu áherslu á að fyrirhuguð gildistaka skuli taka mið af raunhæfum aðlögunartíma fyrirtækja að breytingunum. Máli skiptir að fyrirtækjum gefist nægt svigrúm til aðlögunar frá birtingu endanlegra laga og nauðsynlegra stjórnvaldsfyrirmæla, áður en til gildistöku kemur.
Hér má sjá málið í Samráðsgátt stjórnvalda.