SFF leggja áherslu á öflugar rannsóknir á skipulagðri brotastarfsemi
SFF hafa skilað umsögn til dómsmálaráðuneytisins um drög að frumvarpi til breytinga á lögreglulögum og fleiri lögum. Með frumvarpinu er meðal annars stefnt að aukinni sérhæfingu, öflugri rannsóknargetu og bættri samhæfingu innan lögreglu. SFF fagna áherslu stjórnvalda á að bregðast af festu við skipulagðri brotastarfsemi hér á landi.
Í umsögninni benda SFF á að skipulögð brotastarfsemi geti náð yfir fleiri en eitt lögregluumdæmi og tengst alþjóðlegri brotastarfsemi. Einstök brot, svo sem netsvik, tryggingasvik, auðkennisþjófnaður og peningaþvætti, geti jafnframt verið hluti af umfangsmeiri starfsemi skipulagðra brotahópa.
SFF telja áskorunina ekki síst felast í að greina þessi tengsl og rekja brotastarfsemina til þeirra sem að baki henni standa. Það getur kallað á umfangsmikla greiningu fjármagnshreyfinga, stafrænar rannsóknir og samstarf við erlend lögregluyfirvöld, auk annarra aðila sem að slíkum málum koma.
Samtökin telja því mikilvægt að lögregla hafi næga sérþekkingu, mannafla og rannsóknargetu til að greina tengsl milli brota og rekja starfsemina til þeirra sem að baki henni standa.
SFF leggja jafnframt áherslu á samstarf lögreglu, eftirlitsstofnana, fjármálafyrirtækja og vátryggingafélaga, enda búi þessir aðilar yfir mikilvægri þekkingu á fjármagnshreyfingum, svikum og áhættugreiningu.
Samtökin telja mikilvægt að til staðar sé skýr lagaumgjörð um upplýsingaskipti, auk skýrs verklags, þar sem gætt er meðalhófs, horft til krafna og samspils við kröfur um persónuvernd, aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og réttaröryggi. Framangreint er forsenda þess að upplýsingar nýtist í baráttu gegn skipulagðri brotastarfsemi og skapar jafnframt réttarvissu fyrir þá sem að þeim koma. Árangur ræðst af því hverju úrræðin skila í reynd og raunhæfri nálgun, ekki umfangi regluverksins eins og sér.
SFF fagna því að unnið sé að úrbótum á þessu sviði og eru reiðubúin til frekara samtals við stjórnvöld.