Þingmálaskrá og umsagnir SFF frá september 2025 til janúar 2026
SFF fylgjast með þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar og þeim lagafrumvörpum sem geta haft áhrif á starfsemi aðildarfélaga samtakanna. Í því felst að yfirfara efni mála og koma sjónarmiðum SFF á framfæri með umsögnum í samráðsgátt, til Alþingis og Seðlabankans eða annarra stjórnvalda eftir atvikum. Markmið þessa er að geta komið að mikilvægum ábendingum í lagasetningarferlinu.
Aðildarfélög eru hvött til þess að fylgjast með upplýsingagjöf hvað þetta varðar, bæði frá SFF, Alþingi og Samráðsgátt stjórnvalda, auk þess að koma ábendingum á framfæri til SFF, þegar það getur átt við.
Jafnframt er áréttað að upptalning mála í skjalinu er ekki endilega tæmandi, heldur er leitast við að sinna verkefninu eftir bestu getu og á grundvelli þeirra upplýsinga sem liggja fyrir hverju sinni.
Yfirlit SFF má finna hér til hliðar.
Sé nánari upplýsinga óskað er velkomið að hafa samband við Írisi Björk Hreinsdóttur, yfirlögfræðing, iris@sff.is.