SFF taka undir mikilvægi einföldunar og eflingu samkeppnishæfni Evrópu
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) kynnti nýverið aðgerðir sem miða að samþættara, skilvirkara og samkeppnishæfara bankakerfi. Markmiðið er að styrkja getu evrópskra banka til að fjármagna hagvöxt, nýsköpun og önnur stefnumarkandi verkefni, samhliða því að viðnámsþróttur bankakerfisins og fjármálastöðugleiki verði áfram tryggðir. Framkvæmdastjórnin kallaði nýverið eftir sjónarmiðum.
SFF sendu framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í kjölfarið bréf um samkeppnishæfni og eflingu innri markaðarins þegar kemur að fjármálaþjónustu. Samtökin fagna áherslu framkvæmdastjórnarinnar á aukna samkeppnishæfni evrópska bankakerfisins og frekari þróun innri markaðarins fyrir fjármálaþjónustu.
Í bréfinu leggja samtökin áherslu á mikilvægi þess að einfalda regluverk, draga úr gullhúðun (e. gold plating), óþarfa flækjustigi og stjórnsýslubyrði, án þess að slakað sé á kröfum um viðnámsþrótt og fjármálastöðugleika. SFF bentu jafnframt á að sértæk skattlagning á fjármálafyrirtæki, líkt og bankaskattur á Íslandi, geti haft áhrif á samkeppnishæfni og starfsskilyrði fjármálamarkaða. Regluverkið þurfi að vera skýrt, samræmt og í réttu hlutfalli við þá áhættu sem því er ætlað að mæta.
Sérstaklega bentu SFF á mikilvægi meðalhófs og þess að við mótun evrópsks regluverks sé tekið tillit til ólíkrar stærðar fjármálamarkaða. Banki sem telst stór og kerfislega mikilvægur á smærri markaði getur verið lítill í evrópskum samanburði.
Samtökin leggja áherslu á að skýrt, samræmt og hóflegt regluverk geti stutt bæði við viðnámsþrótt fjármálakerfisins og samkeppnishæfni Evrópu.