Þátttaka SFF í forsamráði um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi
Innviðaráðuneytið hefur hafið undirbúning að gerð draga að grænbók um fjarskipti og netöryggi. Ráðuneytið hefur óskað eftir sjónarmiðum varðandi viðfangsefni grænbókarinnar. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) vilja nýta tækifærið til þess að koma á framfæri sjónarmiðum vegna málsins.
Fjarskipti og netöryggi verða sífellt tengdari og eru fjarskipti meðal forsendna fyrir því að hægt sé að eiga samskipti og veita stafræna þjónustu. Tækninni fleygir ört fram sem og þar með þeim aðferðum sem svikahópar nýta. Brýnt er að vera sífellt á varðbergi gagnvart því hvernig megi sporna gegn hættu sem svik hafa í för með sér. SFF nefna að samtökin hafa lagt sitt af mörkum í baráttunni gegn svikum á undanförnum árum og hafa m.a. staðið fyrir herferðum, greinarskrifum og átt ýmis samskipti við stjórnvöld.
SFF benti á nokkur atriði til skoðun við gerð draga að grænbók:
- Nýtt séu þau tækifæri sem felast í vinnslu grænbókarinnar til að draga fram stöðu mála, helstu áskoranir og þá valkosti sem koma til greina til að styðja við öruggt samfélag og tryggja netöryggi og sporna gegn svikum.
- Öflugt netöryggi, viðnámsþróttur og traust stafræn kerfi skipta miklu máli í því nútímaumhverfi sem við búum við.
- Rétt að skoða sérstaklega í því samhengi hættu og fyrirbyggjandi aðgerðir vegna svika sem snúa að sviksamlegum vefsíðum, sviksamlegum skilaboðum, símtölum o.fl.
- Viðbrögð og getu við tilkynningar vegna svikatilrauna í fjarskiptum og skjótum og öruggum viðbrögð við slíkum tilkynningum.
- Þá kann að vera mikilvægt að skoða að til staðar séu tilteknar mótvægisaðgerðir sem ráðast skal í þegar svik hafa átt sér stað og þá hvaða aðgerða sé hægt að grípa til hratt og örugglega.
- Skoða hvaða tækifæri eru til staðar þegar kemur að samstarfi ólíkra aðila í kerfinu vegna yfirvofandi, yfirstandandi og yfirstöðnum svikum; og hvort það séu vannýtt tækifæri til staðar sem rétt sé að bæta úr.
Í samráðsskjali ráðuneytisins kom fram að það feli ekki í sér drög að stefnu eða endanlega afstöðu stjórnvalda, heldur sé um forsamráð að ræða. Drög að grænbók verða birt til sérstaks samráðs síðar.