Þingmálaskrá og umsagnir SFF á yfirstöðnum þingvetri
SFF fylgjast með þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar og þeim lagafrumvörpum sem geta haft áhrif á starfsemi aðildarfélaga samtakanna. Í því felst að yfirfara efni mála og koma sjónarmiðum SFF á framfæri með umsögnum í samráðsgátt, til Alþingis og Seðlabankans eða annarra stjórnvalda eftir atvikum.
Markmið þessa er að geta komið að mikilvægum ábendingum í lagasetningarferlinu.
Aðildarfélög eru hvött til þess að fylgjast með upplýsingagjöf hvað þetta varðar, bæði frá SFF, Alþingi og Samráðsgátt stjórnvalda, auk þess að koma ábendingum á framfæri til SFF, þegar það getur átt við.
Jafnframt er áréttað að upptalning mála í skjalinu er ekki endilega tæmandi, heldur er leitast við að sinna verkefninu eftir bestu getu og á grundvelli þeirra upplýsinga sem liggja fyrir hverju sinni.
Þingi var frestað þann 19. júní sl., og hefur afgreiðslu þeirra mála sem ekki tókst að ljúka fyrir þinglok verið frestað. Þingið kemur saman á ný þann 8. september.
Yfirlit SFF má finna hér til hliðar.
Sé nánari upplýsinga óskað er velkomið að hafa samband við Írisi Björk Hreinsdóttur, yfirlögfræðing, iris@sff.is