Umsögn SFF um áform um setningu laga til breytinga á lögum um ökutækjatryggingar
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu hafa skilað umsögn um áform um setningu laga til breytinga á lögum um ökutækjatryggingar og áhrifum slíkrar lagasetningar í gegnum Samráðsgátt stjórnvalda. Lagasetningin er áformuð með það fyrir augum að innleiða tilskipun (ESB) 2021/2118 (hér eftir „tilskipunin“) í landsrétt. Tilskipunin breytir tilskipun 2009/103/EB um ábyrgðartryggingu vegna notkunar vélknúinna ökutækja og um að fylgja því eftir að vátrygging vegna slíkrar ábyrgðar sé tekin.
SFF voru á meðal aðila sem boðaðir voru á kynningarfund varðandi áformaða lagasetningu og eru samtökin þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að koma sjónarmiðum á framfæri á því stigi. Í áformaskjali var stuttlega greint frá helstu fyrirhuguðu breytingum á gildandi lögum og reglum, en þar sem eiginleg frumvarpsdrög liggja ekki fyrir á þessu stigi er óvíst að hvaða marki hafi verið tekið mið af ábendingum. SFF munu skrifa ítarlegri umsögn þegar drög að frumvarpi liggja fyrir.
Að lokum ítrekuðu SFF að við innleiðingu á íþyngjandi regluverki sé mikilvægt að stjórnvöld hafi smæð Íslands í huga og gæti þess að ganga ekki lengra en þörf krefur.