Atvinnulífið leggur áherslu á einfaldara regluverk í umsögn um ný bókhaldslög
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF), Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök ferðaþjónustunnar og Viðskiptaráð Íslands hafa skilað sameiginlegri umsögn um frumvarp til nýrra heildarlaga um bókhald.
Samtökin fagna því að löggjöfin verði aðlöguð rafrænum veruleika, enda byggja gildandi lög frá árinu 1994 að verulegu leyti á forsendum pappírsbókhalds. Sérstaklega er tekið undir að krafa um varðveislu bókhaldsgagna hér á landi falli brott, staða rafrænna skjala verði skýrð og almenn skylda til að kjósa skoðunarmann verði afnumin.
Forðast þarf óþarfa kostnað og íþyngjandi kröfur
Í umsögninni leggja samtökin áherslu á að reglur um bókhald verði skýrar, tæknilega hlutlausar og taki mið af mismunandi stærð fyrirtækja. Kröfur sem séu eðlilegar fyrir stór fyrirtæki geti reynst íþyngjandi fyrir minni atvinnurekendur.
Samtökin leggja jafnframt til að ákvæði um tungumál og gjaldmiðil bókhalds verði endurskoðuð. Ekki verði gerð fortakslaus krafa um að allur texti í bókhaldi sé á íslensku, enda byggi nútímabókhald að miklu leyti á sjálfvirkum upplýsingum úr rafrænum kerfum.
Þá telja samtökin mikilvægt að skýrari mörk verði dregin milli laga um bókhald og laga um ársreikninga til að draga úr tvítekningu og hættu á ósamræmi.
Endurskoða þarf sektir og tryggja aðlögunartíma
Samtökin gera einnig athugasemdir við fyrirhugaðan sektarramma og leggja til að lágmarkssektir verði felldar brott eða að heimilt verði að lækka þær þegar málsbætur eru fyrir hendi.
Að lokum leggja samtökin áherslu á að fyrirtæki fái nægan tíma til að laga upplýsingakerfi og verklag að nýjum reglum. Lagt er til að lögin taki gildi við upphaf fyrsta reikningsárs sem hefst að minnsta kosti tólf mánuðum eftir samþykkt þeirra og að nauðsynlegar reglugerðir liggi fyrir tímanlega.
Samtökin styðja að frumvarpið nái fram að ganga, að teknu tilliti til athugasemdanna, og lýsa sig reiðubúin til frekara samráðs um útfærslu laganna.