SFF leggjast gegn áformum stjórnvalda um aukna skattheimtu
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um aukna skattheimtu á fjármálageirann samkvæmt tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun 2027–2031.
Fjármálafyrirtæki bera nú þegar bera þunga sértæka skattbyrði, auk hærri eiginfjárkrafna og bindiskyldu en víða í nágrannaríkjum. Samtökin gagnrýna að engin samtöl hafi átt sér stað um áformin og að óvissa ríki um útfærslu, umfang og gildistíma verði tekin ákvörðun um frekari skattheimtu á fjármálageirann.
SFF benda m.a. á eftirfarandi:
• Háir og sértækir skattar á fjármálafyrirtæki eru til þess fallnir að veikja samkeppnisstöðu Íslands og geta því haft áhrif á lífskjör hérlendis til lengri tíma.
• Íslenskir bankar greiða fleiri skatta og bera hærri skattbyrði en bankar í þeim löndum sem við berum okkur saman við.
• Helstu rök fyrir sértækum sköttum á fjármálafyrirtæki hérlendis tengdust fjármálaáfallinu 2008. Þær forsendur eiga ekki við lengur.
• Ný eða aukin skattheimta á fjármálafyrirtæki er úr takti við atvinnustefnu stjórnvalda næstu 10 árin sem miðar að hagsæld og markmið stjórnvalda um að laða erlenda fjárfesta að og efla atvinnulífið.
• Tekjur ríkisins af fjármálaþjónustumarkaði eru nú þegar verulegar á hverju ári.
• Íslandsálagið er nú þegar verulega íþyngjandi; háar eiginfjárkröfur, há sértæk skattlagning, há óvaxtaberandi bindiskylda og óhagræði vegna smæðar markaðarins og bankanna.
• Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Seðlabanki Evrópu, Seðlabanki Íslands og fleiri aðilar hafa undanfarið varað viðítrekað við auknum álögum í formi skattlagningar á fjármálafyrirtæki.
• Óskynsamlegur tímapunktur sé horft til stöðunnar í heiminum og umhverfisins hérlendis.
• Almenningur er stærsti eigandi bankanna, bæði með beinum og óbeinum hætti.
Að mati SFF gætu auknar og ófyrirséðar álögur veikt samkeppnishæfni Íslands og haft neikvæð áhrif.
Samtökin telja nær að draga úr núverandi álögum og kalla eftir samráði við stjórnvöld áður en ákvörðun verður tekin. SFF óska jafnframt eftir því að fá að gera fjárlaganefnd grein fyrir sjónarmiðum sínum.