Sameiginleg umsögn um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um hlutafélög og einkahlutafélög
Samtök atvinnulífsins, Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, SVÞ - samtök verslunar og þjónustu, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samorka, Samtök iðnaðarins, Samtök ferðaþjónustunnar og Viðskiptaráð Íslands (hér eftir sameiginlega nefnd samtökin) hafa skilað inn umsögn í gegnum Samráðsgátt stjórnalda um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um hluta- og einkahlutafélög. Með breytingunni er fyrirhugað að innleiða ákvæði tilskipunar (ESB) 2017/828, SRD II og framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1212.
Fulltrúar SA, SFF og Viðskiptaráðs áttu sæti í óformlegum starfshópi ráðuneytisins á meðan unnið var að gerð frumvarpsins. Hægt er að fallast á að á frumstigum þessa máls hafi verið gerð gangskör að samráði, sem er til eftirbreytni og ber að fagna. Hafa verður hugfast að í lögum um hluta- og einkahlutafélög er kveðið á um mikilvægar reglur sem grundvalla starfsemi þeirra félagaforma sem meginþorri íslensks atvinnulífs reiðir sig á. Undirliggjandi hagsmunir eru verulegir, en sökum þess er nauðsynlegt að stjórnvöld vandi til verka og fylgi fyrir fram ákveðnum starfsferlum er þau vinna að breytingum á íslenskri félagaréttarlöggjöf. Líta má til samráðsferlis mála í því samhengi, en mikilvægt er að formfestu gæti við samráð og tökuákvarðana um hverja samráð sé haft við.
Í umsögn samtakanna voru gerðar ýmsar athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar, en í dæmaskyni má nefna breytingar er varða skilgreiningar á hugtökum og orðalag ákvæða, starfskjarastefnu- og skýrslu, ákvæði um mikilvæg viðskipti og þátttökustefnu.
Þá var einnig gerð athugasemd við áætlaða gildistöku laganna, þann 1. júlí 2026. Samtökin telja ekki raunhæft að lögin taki gildi svo snemma, enda þarfnist þeir aðilar sem frumvarpið til ríkara svigrúms til að laga sig að fyrirhuguðum breytingum. Af hálfu samtakanna var lagt til að gildistökunni yrði frestað, en raunhæfara þætti að miða við að lögin tækju gildi áramótin 2026-2027.
Við innleiðingu regluverks ESB leggja samtökin almenna áherslu á að ekki verði farið umfram lágmarkskröfur Evrópureglna, gildissvið íslenskra reglna verði ekki víðtækara en þeirra evrópsku, allar ívilnandi undanþágur verði nýttar og að allar sambærilegar kröfur sem fyrir eru í lögum eða reglugerðum verði afnumdar.