SFF gera alvarlegar athugasemdir við áhrifamat vegna hækkunar sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki
Vísað er til minnisblaðs fjármála- og efnahagsráðuneytisins, dags. 17. nóvember sl., sem efnahags- og viðskiptanefnd kallaði eftir, þann 20. október sl. Nefndin óskaði eftir forsendum og áhrifamati vegna hækkunar sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki. SFF telja nauðsynlegt að vekja athygli á því að minnisblaðið svarar ekki spurningunum um forsendur og heildaráhrif skattahækkunarinnar; sem hlýtur að þurfa að vera mat á áhrifum á ríkissjóð, atvinnulífið, almenning og þjóðarbúið í heild.
1. Nettóáhrif á ríkissjóð eru ekki metin
Áætlaðir 6 ma.kr. í aukna skattheimtu eru brúttótekjur af boðaðri skattahækkun, en ekki nettótekjur þegar tekið hefur verið tillit til áhrifa skattahækkunarinnar á aðrar tekjur ríkissjóðs.
Ekki er lagt tölulegt mat á heildaráhrif breytingarinnar, til að mynda hver nettóávinningur ríkissjóðs verður þegar áhrif á aðrar skatttekjur, arðgreiðslur og verðmæti eignarhlutar ríkisins í Landsbankanum, ásamt öðrum afleiddum áhrifum, hafa verið tekin með í reikninginn.
Spurningin er því hversu mikið situr eftir hjá ríkissjóði þegar allt er talið.
2. Hagsmunir ríkisins sem eiganda Landsbankans eru ekki metnir
Ríkið á í reynd um 99,8% af útistandandi hlutafé Landsbankans og verður bankinn að óbreyttu stærsti einstaki greiðandi skattsins. Þrátt fyrir það er ekki lagt tölulegt mat á áhrif skattahækkunarinnar á arðgreiðslur Landsbankans, framtíðararðgreiðslugetu eða verðmæti eignarhlutar ríkisins í minnisblaðinu. Framangreint er umhugsunarvert í ljósi þess að ein forsenda lækkunar bankaskattsins árið 2020 var að auka verðmæti bankaeigna ríkisins. Bankasýsla ríkisins mat árið 2019 að lækkunin gæti aukið verðmæti eignarhluta ríkisins í Landsbankanum og Íslandsbanka. Ef þessi áhrif þóttu skipta máli þegar skatturinn var lækkaður er eðlilegt að þau séu einnig metin þegar skatturinn er hækkaður.
3. Fyrirliggjandi gögn um skattbyrði fá ekki fullnægjandi vægi
Fyrirhuguð hækkun er ekki lögð til í tómarúmi. Fyrirliggjandi samanburður bendir til þess að sértækir skattar á íslenska banka séu þegar margfalt hærri en að meðaltali í Vestur-Evrópu, miðað við eignir. Samkvæmt greiningu KPMG voru sértækir skattar fimmfaldir á við önnur lönd Vestur-Evrópu miðað við eignir árið 2025 og hefðu verið um sjöfalt hærri hefði boðuð skattahækkun tekið gildi. Ísland sker sig jafnframt úr að því leyti að sértækir skattar eru lagðir á skuldir, hagnað og laun samtímis, eitt ríkja Vestur-Evrópu samkvæmt greiningu KPMG.3 Seðlabanki Íslands hefur einnig bent á að skattgreiðslur íslensku kerfislega mikilvægu bankanna séu með þeim hæstu í Evrópu.
4. Forsendur og uppbygging skattsins eru ekki endurmetnar
Lögbundið markmið sérstaka skattsins tengist enn kostnaði ríkissjóðs vegna endurreisnar fjármálakerfisins og áhættu. Fyrirliggjandi greiningar bentu þó til þess að beinn kostnaður ríkisins af endurreisn bankanna hefði verið endurheimtur fyrir áratug og lagaumhverfi þegar kemur að áhættu og áhættustýringu hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum árum.
Seðlabanki Íslands hefur áður talið erfitt að sjá að sérstaki bankaskatturinn samræmdist almennum sjónarmiðum um skilvirka og lítið bjagandi skattheimtu og talið heppilegt að skatturinn yrði með tímanum lagður af. Það kallar á efnislegt endurmat á því hvort forsendur og uppbygging skattsins, sem mótaðar voru við allt aðrar aðstæður, eigi enn við.
5. Heildarálögur hafa þegar aukist á ný
Við mat á skattbyrði þarf að horfa til heildarmyndarinnar. Þegar saman eru teknir sértækir skattar og kostnaður vegna óvaxtaberandi bindiskyldu hafa álögur á bankana þegar færst aftur að því marki sem gilti áður en bankaskatturinn var lækkaður.
Hækkun óvaxtaberandi bindiskyldu úr 1% í 3% árin 2023 og 2024 skiptir þar verulegu máli. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur lýst slíkri bindiskyldu sem ígildi skatts á banka. Þetta samhengi þarf að koma fram þegar heildaráhrif frekari skattahækkunar eru metin.
6. Fyrirliggjandi ábendingar um þjóðhagsleg áhrif eru ekki teknar til efnislegrar skoðunar
Fjöldi aðila hefur bent á möguleg áhrif sértækra bankaskatta á fjárfestingu, hagvöxt, samkeppnishæfni og opinber fjármál. Einnig liggja fyrir erlendar rannsóknir og ábendingar alþjóðastofnana um að slíkir skattar geti haft víðtækari áhrif en bein tekjuöflun gefur til kynna.
Ekki þarf að fallast fyrir fram á hverja rannsókn eða hvert mat. En þegar lagt er til að skattur, sem þegar er hár í alþjóðlegum samanburði, verði hækkaður verulega og hækkunin gerð varanleg þarf áhrifamatið þó að taka efnislega afstöðu til þessara gagna. Almenn umfjöllun eða upptalning mögulegra áhrifa kemur ekki í stað tölulegs mats. Engin fylgiskjöl, útreikningar, rökstuddar forsendur eða gögn fylgja minnisblaðinu.
7. Engin raunveruleg valkostagreining liggur fyrir
Ekki verður séð að lagt hafi verið mat á hvort hækkun sérstaks skatts á skuldir sé hagkvæmasta leiðin til að afla ríkissjóði sömu tekna. Ekki liggur fyrir samanburður við breiðari tekjuöflunarleiðir eða mat á mismunandi áhrifum þeirra á hagkerfið og tekjur ríkissjóðs.
Valkostagreining er sérstaklega mikilvæg þegar skattstofninn er þröngur og fyrirliggjandi gögn benda til þess að skatturinn geti haft bjagandi áhrif.
8. Sólarlagsákvæði nauðsynlegt ef markmið er viðbragð við tímabundnu ástandi
Ef ekki er fallið frá fyrirhugaðri hækkun bankaskatts telja SFF nauðsynlegt að lögfesta skýrt sólarlagsákvæði sem tryggir að hækkunin verði tímabundin en festist ekki varanlega í sessi.
Ljóst er að sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki er óháður afkomu og efnahagsaðstæðum hverju sinni. Sé markmiðið að bregðast við tímabundnum aðstæðum er eðlilegt að skattlagningin væri einnig tímabundin með skýru sólarlagsákvæði. Slíkt ákvæði skapar nauðsynlegan fyrirsjáanleika, m.a. þegar kemur að fjármögnun bankakerfisins og annarra fyrirtækja hérlendis.
Alþjóðastofnanir á borð við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS), OECD og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafa lagt áherslu á mikilvægi fyrirsjáanlegs skattumhverfis, samkeppnishæfni og reglubundins mats á áhrifum opinberra ráðstafana. Þá hafa AGS og ESB beinlínis ráðlagt fjölda ríkja sem ráðist hafa í hækkun sértækra skatta á fjármálafyrirtæki að tímabinda skattahækkunina með skýru sólarlagsákvæði. Þá má einnig benda á nýleg ummæli seðlabankastjóra á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar dags. 3. nóvember sl.4 Sólarlagsákvæði væri því hófleg og málefnaleg leið til þess að koma til móts við tímabundna tekjuöflunarþörf ríkissjóðs án þess að festa enn frekar í sessi þá sérstöku skattbyrði sem þegar hvílir á íslenskum fjármálafyrirtækjum.
Án mats á nettóáhrifum á ríkissjóð, hagsmunum ríkisins sem eiganda Landsbankans, fyrirliggjandi gögnum um skattbyrði, núverandi forsendum skattsins, þjóðhagslegum áhrifum og öðrum leiðum til tekjuöflunar liggur ekki fyrir hvort fyrirhuguð hækkun skili ríkissjóði þeim ávinningi sem gert er ráð fyrir.
Jafnframt telja SFF að enn skorti á greiningu á mögulegum neikvæðum áhrifum skattahækkunarinnar á fjárfestingu, samkeppnishæfni og hagvöxt. Án heildstæðs áhrifamats verður því hvorki lagt fullnægjandi mat á ávinning skattahækkunarinnar, né mögulegan kostnað hennar fyrir efnahagslífið í heild.
Að öðru leyti er vísað til fyrri umsagna SFF um málið og fylgigagna í heild, þar sem frekari sjónarmið koma fram um aðra þætti málsins. Samtökin eru reiðubúin til samtals verði eftir því óskað.