Kallað eftir auknu samráði og áherslu á fjármálalæsi í menntastefnu
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF), Samtök atvinnulífsins (SA), Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) og Sjálfstæðir skólar hafa skilað sameiginlegri umsögn um drög að þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til ársins 2030.
Samtökin fagna áherslu stjórnvalda á grunnfærni, gæði kennslu og mælanlegan árangur en telja mikilvægt að skerpa á einstökum aðgerðum og tryggja markvisst samráð við atvinnulífið við mótun, framkvæmd og eftirfylgni áætlunarinnar.
Í umsögninni er meðal annars lögð áhersla á að:
• Tryggja reglulegt og markvisst samráð við atvinnulífið svo menntakerfið geti betur mætt breyttri hæfniþörf vinnumarkaðarins.
• Gera fjármálalæsi að skyldufagi og samþætta fjármálafræðslu aðgerðum um eflingu grunnfærni, þróun námsgagna og starfsþróun kennara.
• Setja skýr og mælanleg markmið um árangur nemenda og tryggja markvissa eftirfylgni.
• Efla iðn- og starfsnám og tryggja að námsframboð taki mið af þörfum atvinnulífsins.
SFF hafa einnig skilað sérstakri umsögn um þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030. Þar leggja samtökin sérstaka áherslu á að fjármálalæsi verði gert að skyldufagi í grunnskólum, að mótuð verði landsstefna um fjármálalæsi og að sett verði skýr og mælanleg markmið um árangur fjármálafræðslu.
Lesa má ítarlegri umsögn SFF hér.