Umsögn um drög að frumvarpi um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi
SFF skiluðu umsögn um drög að frumvarpi um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. Samtökin fagna því að tekin séu skref til að styrkja aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi, en umsögnin lýtur einkum að fyrirhuguðum sérstökum samráðsvettvangi lögreglu, stjórnvalda og einkaaðila.
Það er mat samtakanna að skýra þurfi nánar hvernig aðkomu annarra þátttakenda en lögreglu verði háttað, hvaða réttindi og skyldur fylgi þátttöku og hvernig meðferð, miðlun, varðveislu og eyðingu upplýsinga verði háttað.
SFF leggja áherslu á að skýrt verði hvernig fyrirhuguð upplýsingamiðlun og frumkvæðisskylda samstarfsaðila samræmist gildandi reglum, meðal annars um þagnarskyldu, persónuvernd og aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þá telja samtökin rétt að skoða hvort afmarka þurfi nánar tilgang upplýsingamiðlunar og hvaða brota hún taki til.
Samtökin eru reiðubúin til áframhaldandi samtals við stjórnvöld og löggæsluyfirvöld við nánari útfærslu ákvæðisins.
Að lokum undirstrika samtökin að það sé allra hagur að þeir sem leggja stund á skipulagða brotastarfsemi finni að hér á landi sé bæði vilji og geta til að sporna af festu gegn þeirri ógn sem af henni stafar.