Umsögn um drög að forgangslista við hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu árin 2024 – 2029
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu skrifuðu sameignlegri umsögn með Samtökum atvinnulífsins, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum verslunar og þjónustu og Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi um drög að forgangslista við hagsmunagæslu íslands gagnvart Evrópusambandinu (ESB) fyrir árin 2024-2029.
Samtökin fagna því að birtur sé listi mála sem skilgreind hafa verið sem forgangsmál hvað íslenska hagsmuni varðar. Forgangslistinn er nú unninn samkvæmt endurskoðaðri aðferðafræði, sem miðar að því að greina með markvissari og skipulegri hætti þau mál þar sem talið er að Ísland kunni að hafa sérstaka hagsmuni.
Samtökin fagna þessari breytingu og telja vinnu utanríkisráðuneytisins til þess fallna að greina nánar hagsmuni Íslands og oft á tíðum íslensks atvinnulífs en áður.
Í umsögninni er áfram undirstrikuð hvatning til stjórnvalda og löggjafans um mikilvægi þess að varast gullhúðun í löggjöf hérlendis sem virðist vera hvað víðtækust á fjármálamarkaði. Ný evrópsk eftirlitsstofnun með aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (AMLA) var einnig gerð að umtalsefni í umsögninni. Bent er á að mikilvægt er að það verði skýrt og ljóst hvernig eftirliti AMLA verði háttað hérlendis, samspili við aðrar eftirlitsstofnanir sé gagnsætt og að þetta verði gert þannig að aðilar hafi nægt svigrúm til að bregðast við í starfsemi sinni
Einnig er mikilvægt að horfa til smæðar íslensks fjármálamarkaðar, samkeppnishæfni og þess að gæta meðahlófs, sérstaklega þegar um íþyngjandi reglur er að ræða. Mikilvægt er að gæta að því að þær gangi ekki lengra en nauðsynlegt er.