Umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um kílómetragjald á ökutæki
SFF hafa skilað umsögn til fjármála- og efnahagsráðuneytisins um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um kílómetragjald á ökutæki. Umsögnin lýtur einkum að fyrirhuguðum breytingum á undanþágum frá gjaldinu og skráningu á stöðu akstursmæla.
Undanþága vegna ökutækja sem vátryggingafélög eignast
Í umsögninni benda SFF á að vátryggingafélög eignist árlega fjölda ökutækja við uppgjör tjóna. Ökutækin séu að jafnaði aðeins í eigu félaganna í skamman tíma áður en þau eru seld til viðgerðar, niðurrifs eða förgunar. Akstur þeirra á þessu tímabili sé yfirleitt enginn eða óverulegur.
Samtökin telja að umsýsla við álagningu og innheimtu kílómetragjalds í þessum tilvikum geti verið óhófleg í samanburði við fjárhagslegan ávinning af gjaldtökunni. Því leggja þau til sérstaka undanþágu frá greiðslu gjaldsins, að því skilyrði uppfylltu að ökutækin séu ekki tekin til almennrar notkunar.
Þá telja SFF mikilvægt að reglurnar taki mið af því að í sumum tilvikum sé ekki hægt að lesa af akstursmælum vegna skemmda. Slíkt eigi ekki að koma í veg fyrir eigendaskipti eða afskráningu ökutækja.
Endurskoða þarf upplýsingaskyldu vátryggingafélaga
SFF gera jafnframt athugasemdir við gildandi ákvæði sem skyldar vátryggingafélög til að skrá kílómetrastöðu ökutækja sem orðið hafa fyrir tjóni hjá Samgöngustofu.
Samtökin benda á að skyldan nái einnig til tilvika þar sem vátryggingafélög hafa hvorki eignast ökutækin né haft aðgang að þeim. Sem dæmi megi nefna þegar eigandi fer sjálfur með ökutæki í viðgerð og vátryggingafélag greiðir viðgerðarkostnaðinn.
Að mati SFF getur svo víðtæk upplýsingaskylda lagt verulega umsýslubyrði á vátryggingafélög, enda bæti þau árlega tjón á fjölda ökutækja. Samtökin leggja því til að ákvæðið verði tekið til endurskoðunar og upplýsingaskyldan afmörkuð með skýrari hætti.