Umsagnir
Umsögn um drög að reglugerð um afmörkun viðkvæmra sviða samkvæmt lögum um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu
SFF hafa skilað umsögn til atvinnuvegaráðuneytisins um drög að reglugerð um afmörkun viðkvæmra sviða samkvæmt lögum nr. 84/2026, um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu. SFF kalla eftir endurskoðun reglugerðardraganna í samráði við SFF og telja nauðsynlegt að skoða frestun gildistöku ef skýr afmörkun, undanþágur og leiðbeiningar liggja ekki fyrir tímanlega.
Kallað eftir auknu samráði og áherslu á fjármálalæsi í menntastefnu
SFF, SA, SVÞ og Sjálfstæðir skólar hafa skilað sameiginlegri umsögn um þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030. Samtökin leggja áherslu á aukið samráð við atvinnulífið, að fjármálalæsi verði gert að skyldufagi og að sett verði skýr og mælanleg markmið um árangur menntakerfisins.
Umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um kílómetragjald á ökutæki
SFF hafa skilað umsögn um breytingar á lögum um kílómetragjald og leggja til að vátryggingafélög verði undanþegin greiðslu gjaldsins vegna ökutækja sem þau eignast við tjónsuppgjör og varðveita til endursölu eða förgunar. Þá vilja samtökin endurskoða skyldu vátryggingafélaga til að skrá kílómetrastöðu tjónabifreiða, enda nái hún einnig til ökutækja sem félögin hafa hvorki eignast né haft aðgang að.
Atvinnulífið leggur áherslu á einfaldara regluverk í umsögn um ný bókhaldslög
SFF og fjögur önnur samtök hafa skilað sameiginlegri umsögn um frumvarp til nýrra heildarlaga um bókhald. Samtökin fagna því að löggjöfin verði aðlöguð rafrænum veruleika en leggja áherslu á að nýjar kröfur taki mið af stærð og eðli reksturs fyrirtækja. Þá vilja þau endurskoða ákvæði um tungumál bókhalds og lágmarkssektir, skýra mörk milli bókhaldslaga og ársreikningalaga og tryggja raunhæfan aðlögunartíma.
SFF vilja að fjármálalæsi fái aukið vægi í menntastefnu
SFF hafa skilað umsögn um þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til ársins 2030 og leggja til að lögð verði sérstök áhersla á fjármálalæsi. Samtökin vilja að mörkuð verði sérstök landsstefna um fjármálalæsi, kennsla verði samræmd milli skóla og árangur hennar metinn reglulega. Þá leggja SFF áherslu á að fjármálalæsi verði gert að skyldufagi svo öll börn öðlist grundvallarþekkingu á fjármálum, óháð búsetu og bakgrunni.
Umsögn um frumvarp til laga um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) leggja áherslu á að íslenskar reglur um breytileg starfskjör verði færðar til samræmis við það sem tíðkast í Evrópu. Þá telja samtökin mikilvægt að verðbréfafyrirtækjum verði tryggður nægur tími til aðlögunar að nýjum varfærniskröfum.