Fjármálaleikarnir hafnir og mikilvægi fjármálalæsis

Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF, og Kristín Lúðvíksdóttir, verkefnastjóri fjármálafræðslu, voru til viðtals í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun. Þar ræddu þær um Fjármálaleikana, landskeppni grunnskólanna í fjármálalæsi, sem nú eru hafnir, og mikilvægi þess að fjármálalæsi verði gert að skyldufagi í skólum landsins.
Kristín og Heiðrún leiddu hlustendur í allan sannleikann um Fjármálaleikana, sem eru netkeppni í fjármálalæsi, milli unglingastiga í grunnskólum landsins. Leikarnir hófust í dag og standa yfir í tvær vikur.
„Við erum dálítið að treysta á kennarana, að þeir virki krakkana,“ sagði Kristín. Spurningar í leiknum eru fjölbreyttar og hafa með fjármál einstaklinga að gera, fjármál heimilisins, vinnumarkað og loks fjármál samfélagsins.
Keppnin er opin öllum unglingadeildum grunnskóla landsins og keppa skólarnir sín á milli. Nemendur í þeim skóla sem stendur uppi sem sigurvegari hljóta peningaverðlaun, auk þess sem sigurskólinn sendir tvo fulltrúa fyrir Íslands hönd í Evrópukeppnina í fjármálalæsi í Brussel í maí næstkomandi.
Allir hvattir til að vera með
Kristín hvetur kennara til að leyfa ungmennum að prófa sig áfram í leiknum. en niðurstöður telja aðeins ef leikurinn er kláraður að fullu.
„Meira að segja kennarar, foreldrar og þeir sem hafa áhuga geta skráð sig inn. Maður velur sinn skóla, en ef þú ert kennari eða foreldri þá velurðu bara kennaraskólann. Þá geturðu svarað sjálfur spurningunum“ sagði Kristín.
Fjármálalæsi verði gert að skyldu
Í viðtalinu var einnig rætt um stöðu fjármálalæsiskennslu á Íslandi. Heiðrún lagði þar áherslu á að fjármálalæsi yrði gert að skyldufagi í öllum grunnskólum.
„Við viljum tryggja jafnræði allra barna. Það er óþolandi að sum börn fái kennslu í fjármálalæsi og þá tækifæri til að byggja sér upp heilbrigðan fjárhag, en eftir stendur stór hluti sem fær ekki þetta tækifæri. Oftar en ekki eru það börn sem eru með veikari bakgrunn,ׅ“ sagði Heiðrún.
Hún vísaði til Gallup-könnunar sem leiddi í ljós að 90 prósent fólks hefðu viljað læra meira um fjármál í skóla. Á sama tíma sögðust aðeins tíu prósent hafa lært um fjármál í grunnskóla. Um helmingur fólks lærir um fjármál á heimilum sínum.
„Helmingur lærir þetta á samfélagsmiðlum. Hvað læra þau þar? Þau læra að taka smálán og geta lent í svikum. Þau læra síður að byggja sér upp heilbrigðan fjárhag. Ég þreytist ekki á að koma með þessa samlíkingu: Við sendum ekki börnin okkar út í umferðina án þess að kenna þeim umferðarreglurnar. Það er óþolandi að við séum að senda stóran hlut ungmenna út í samfélagið, á hverju einasta ári, án þess að þau kunni á fjármál, eða að minnsta kosti hafi kost á að læra það,“ sagði Heiðrún.





.jpg)






%20(300%20x%20200%20px)%20(2).jpg)


