Upptaka: Brunavarnir og öryggi til framtíðar

Fimm ár eru liðin frá eldsvoðanum á Bræðraborgarstíg þar sem veikleikar í kerfum og regluverki komu skýrt í ljós. Í kjölfarið hófst víðtæk umbótavinna þar sem stofnanir og atvinnulíf tóku höndum saman með það markmið að efla öryggi og bæta eftirlit. Af því tilefni stóðu Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, og Samtök iðnaðarins sameiginlega standa fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni: Brunavarnir og öryggi til framtíðar –Samhæfð viðbrögð, lagaumgjörð og hlutverk stofnana og atvinnulífs.
Ráðstefnan stóð yfir frá klukkan 9:00-10:40, fimmtudaginn 4. september á Grand Hótel Reykjavík í salnum Háteig á 4. hæð.
Farið verður yfir helstu lærdóma síðustu fimm ára, hvaða breytingar hafa orðið á regluverki, ábyrgðarskiptingu og framtíðaráskoranir í brunavörnum.
Meðal spurninga sem leitast verður við að svara á ráðstefnunni:
- Hvernig stöndum við á Íslandi þegar kemur að brunvörnum?
- Hvert er umfang bruna og brunatjóna á Íslandi?
- Hvað eru tækifæri til að gera betur á þessu sviði hér á landi?
Eftirfarandi koma fram á ráðstefnunni:
- Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra
- Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
- Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og framkvæmdastjóri Almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins.
- Regína Valdimarsdóttir, framkvæmdastjóri brunavarna- og markaðseftirlitssviðs HMS
- Aleksandra Leonardsdóttir, sérfræðingur hjá ASÍ.
- Birgir Viðarsson, framkvæmdastjóri sölu og ráðgjafar hjá Sjóv
- Tryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdastjóri fasteignasviðs HMS
- Guðni I. Pálsson, brunahönnuður hjá COWI, Brunahönnun bygginga - lærdómur, áskoranir og tækifæri
- Fundarstjóri: Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF