Íris Björk Hreinsdóttir nýr yfirlögfræðingur SFF

Íris Björk Hreinsdóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) og hefur þegar hafið störf.
Íris hefur verðmæta og yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af fjölbreyttum hliðum fjármálamarkaðar og atvinnulífinu. Íris er menntaður lögfræðingur, með málflutningsréttindi og Fulbright og Cobb styrkþegi með LL.M. frá University of Miami.
Íris hefur undanfarið sinnt ráðgjöf við fyrirtæki, stofnanir og hið opinbera, auk þess að vera formaður Úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki. Hún starfaði sem lögmaður hjá Arion banka í fjölbreyttum verkefnum á skrifstofu bankastjóra og lögfræðisviði í rúman áratug og sat í ýmsum nefndum og ráðum innan samstæðu bankans.
Íris hefur auk þess setið í stjórnum fjölda félaga, til að mynda hjá Verði tryggingum, Auðkenni, Leiguskjóli og Katla Fund, Global Equity. Íris situr í tilnefningarnefnd Eikar fasteignafélags. Íris hefur einnig starfað hjá Fjármálaeftirlitinu sem lögfræðingur og upplýsingafulltrúi og setið í ýmsum nefndum á vegum hins opinbera auk þess að starfa sem lögmaður um árabil.
Íris tekur við starfinu af Jónu Björk Guðnadóttur yfirlögfræðingi sem hefur starfað hjá SFF í 17 ár, en mun hefja störf hjá Landsbankanum.
Íris Björk Hreinsdóttir, nýr yfirlögfræðingur SFF:
„Ég fer full tilhlökkunar inn í nýtt starf og með reynslu mína úr fjármálageiranum bý ég að góðum grunni til að takast á við fjölbreytt verkefni samtakanna. Ég er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt og spennt fyrir að takast á við þetta ábyrgðarmikla hlutverk. Ég hlakka til að vinna með öflugu teymi samtakanna, aðildarfyrirtækjunum, stjórnvöldum og öðrum hagsmunaaðilum.“
Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF:
„Það er mikill fengur að fá Írisi til liðs við samhentan hóp starfsmanna hjá Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Hún hefur verðmæta og yfirgripsmikla þekkingu á málaflokknum og hefur í gegnum störf sín skapað sér gott og traust orðspor. Yfirlögfræðingur SFF gegnir lykilhlutverki í starfsemi samtakanna og leiðir faglega vinnu er snýr að lögfræðilegum þáttum. Eitt meginhlutverk hans er að taka þátt í að móta trausta, skilvirka og heilbrigða umgjörð um fjármálaþjónustu á Íslandi og um leið koma á framfæri mikilvægi fjármálageirans fyrir íslenskt efnahagslíf.
Við kveðjum Jónu Björk með þakklæti, hún hefur verið ein af helstu stoðum okkar undanfarin ár. Við óskum henni velfarnaðar á nýjum vinnustað.“