Streymi: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð?
.jpg)
Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? er yfirskrift ráðstefnu sem fer fram í dag 10. febrúar í Arion banka, Borgartúni 19, frá kl. 8:30 til 10:30. Húsið opnar kl. 8:15.
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) og Nasdaq Iceland standa að ráðstefnunni.
Fjallað verður um möguleikann á að innleiða fjárfestingarreikninga fyrir einstaklinga hér á landi, líkt og gefið hefur góða raun annars staðar, t.d. í Svíþjóð. Markus Mild, sérfræðingur hjá Nasdaq, mun segja frá reynslu Svía af innleiðingu slíkra reikninga, og ávinningnum sem hlaust af. Fylgjast má með beinu streymi hér að neðan:
Hvernig þyrftu Íslendingar að bera sig að við innleiðingu slíkra reikninga? Hverju geta þeir skilað okkur og hverju þarf að breyta þannig að hlutabréf verði meira aðlaðandi í augum almennings sem ávöxtunarleið? Gætu fjárfestingarreikningar verið lykillinn að því? Leitast verður við að svara þessum spurningum, ásamt öðrum, á ráðstefnunni.
Dagskrá ráðstefnunnar:
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra – Ávarp ráðherra
Markus Mild, sérfræðingur hjá Nasdaq - The Swedish Investment Savings Account and the financial ecosystem
Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika - Má bæta miðlun sparnaðar?
Jóhann Möller, framkvæmdastjóri markaða hjá Arion banka - Óskalistinn
Guðbjörg Þorsteinsdóttir, lögmaður og meðeigandi á Deloitte Legal - Hvaða áhrif hafa skattar á fjárfestingar og sparnað einstaklinga?
Kristín Hildur Ragnarsdóttir, frá Fortuna Invest - Fjárfestingar í augnhæð
Kristrún Tinna Gunnarsdóttir, ráðgjafi - Gerum hollar ákvarðanir auðveldari
Fundarstjóri verður Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland. Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka og formaður SFF, setur fundinn.







%20(300%20x%20200%20px)%20(2).jpg)






