Tilnefningafrestur til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins til 22. september

Hægt er að senda inn tilnefningar til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2025 fram til 22. september næstkomandi. Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök, þar með talið Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, standa að verðlaununum.
Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn á Umhverfisdegi atvinnulífsins í nóvember, sem haldinn verður á Hilton Reykjavík Nordica.
Veitt verða tvenn verðlaun:
- Umhverfisfyrirtæki ársins
- Framtak ársins
Tilnefna þarf fyrirtæki sérstaklega undir hvorn flokk en einnig er heimilt að tilnefna sama fyrirtækið í báða flokka.
Dómnefnd velur úr innsendum tilnefningum en til að þær teljist gildar þurfa fyrirtæki að uppfylla sett viðmið og ítarlegur rökstuðningur að fylgja með. Aðeins skráð aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins og aðildarsamtaka þeirra geta hlotið tilnefningu.
Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu.