Vel sóttur áhættustýringardagur SFF

Áhættustýringardagur SFF fór fram í síðustu viku fyrir fullum sal á Grand Hótel. Fjölbreyttir fyrirlestrar voru á ráðstefnunni þar sem rætt var um ýmsar áskoranir tengdar áhættustýringu frá ólíkum hliðum, til að mynda tækifæri sem felast í nýtingu gervigreindar, stöðu heimsmálanna og áskoranir tengdum umfangsmiklu regluverki á fjármálamörkuðum en fundarstjóri var Birgir Örn Arnarson meðeigandi hjá KPMG.

Major Kim Guldberg, sem starfar á sviði netöryggismála í danska hernum, hélt erindið Geopolitics in the Post-American Era: Global Power, Systemic Risk & Resilience in a Fragmenting World þar sem hann fjallaði um breytta heimsmynd í alþjóðamálunum og velti upp hugsanlegum hernaðarlegum ógnum sem Ísland gæti staðið frammi fyrir á næstu árum og hvernig mögulegt væri að haga viðbúnaði gagnvart þeim ógnum.

Hafsteinn Hauksson, aðalhagfræðingur Kviku banka, hélt áfram á sömu nótum og flutti erindið Þegar ímyndunaraflið bregst: Ráð gegn óhugsandi áhættu þar sem hann fjallaði um hvernig geópólitísk áhætta getur haft áhrif á afkomu og rekstraröryggi fjármálastofnana og leitar á óhefðbundin mið til að efla áfallaþol - með aðstoð CIA og annarra öryggisstofnana. Hafsteinn kom meðal annars inn á hvaða verkfæri sé hægt að nýta til að undirbúa sig undir atburði sem illmögulegt er að sjá fyrir, til að mynda með nýta öfuga sviðsmyndagreiningu.

Þá hélt Fríða Bjarnadóttir, sem leiðir áhættustýringu sænska bankans SEB á Bretlandi, erindið Risk Management and Risk Culture: Perspective from different geographies. Í erindinu fjallaði Fríða um áhættumenningu hjá SEB og hvernig hún sé yfirfærð milli ólíkra landa en um 19.000 manns víða starfa hjá SEB víða um heim.

Vineeth Menon, sérfræðingur hjá KPMG í Danmörku, hélt erindið AI and Risk Management þar sem hann fjallaði um tækifæri sem geta falist í hagnýtingu gervigreindar á sviði áhættustýringar fjármálafyrirtækja og hvað bankar og önnur fjármálafyrirtæki á Norðurlöndunum hefðu verið að gera í þeim efnum að undanförnu.

Við þökkum öllum sem komu að ráðstefnunni kærlega fyrir komuna!

Glærukynningar fyrirlesara á SFF deginum