277 milljarðar í „tímabundna“ skatta

Íslensk fjármálafyrirtæki hafa greitt um 277 milljarða króna að núvirði í þrjá sértæka skatta, sem ekki eru lagðir á aðrar atvinnugreinar hér á landi, frá því að þeir voru fyrst lagðir á árið 2010. Þar af nema skattgreiðslurnar síðastliðinn áratug um 192 milljörðum króna að núvirði. Sértæku skattarnir þrír leggjast ofan á laun, hagnað og skuldir íslenskra fjármálafyrirtækja. Þetta kemur fram í frétt Morgunblaðsins þann 1. nóvember síðastliðinn.
Í grein blaðsins kemur fram kemur fram að sértækar skattgreiðslur fjármálafyrirtækjanna, sem eru ekki lagðar á aðrar atvinnugreinar hér á landi, námu 17,7 milljörðum króna á síðasta ári samkvæmt nýbirtri álagningu Skattsins á lögaðila. Því til viðbótar greiða fjármálafyrirtæki og aðrir eftirlitsskyldir aðilar fjármálaeftirlitsgjald og gjald vegna reksturs Umboðsmanns skuldara sem ráðgert er að nemi samtals um 3,7 milljörðum á þessu ári. Alls nema því sértækir skattar og gjöld á innlenda fjármálastarfsemi um 21,4 milljörðum króna.
Skattarnir innheimtir þó upphafleg rök eigi ekki lengur við
Um þessar mundir eru nákvæmlega 10 ár síðan að tilkynnt var á blaðamannafundi að náðst hefði samkomulag um svokölluð stöðugleikaframlög slitabúa föllnu bankanna. Í kjölfar greiðslu stöðugleikaframlaganna til ríkisins var áætlað að ríkissjóður hefði endurheimt beinan kostnað af endurreisn fjármálakerfisins og gott betur samkvæmt skýrslum frá bæði Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Ásgeiri Jónssyni, nú seðlabankastjóra, og Hersi Sigurgeirssyni, prófessors í fjármálum.
„Ein meginröksemdin fyrir hinni upphaflegu sértæku skattlagningu á íslensk fjármálafyrirtæki var að endurheimta kostnað sem féll á ríkið við endurreisn efnahagslífsins frá árinu 2008. Skattarnir hafa haldist við lýði þrátt fyrir að sú röksemd eigi ekki lengur við,“ segir HeiðrúnJónsdóttir framkvæmdastjóri SFF í samtali við Morgunblaðið.
„Ekkert hinna norrænu landanna hefur gengið jafn langt í sértækri skattlagningu á fjármálastarfsemi og eru til að mynda engir sérstakir bankaskattar í Finnlandi,“ bendir Heiðrún á. „Þá nema hefðbundnar skattgreiðslur innlendra fjármálafyrirtækja einnig umtalsverðum fjárhæðum, enda hafa heildarskattgreiðslur þeirra verið verulega umfram það sem ætla má frá til að mynda fjölda starfandi í greininni.“
Sjá frétt Morgunblaðsins hér.
Sjá grein Morgunblaðsins hér.


%20(1).jpg)
.jpg)



.jpg)



.jpg)
%20(1000%20x%201000%20px).jpg)
.jpg)

