Beint streymi: Leiðir til að efla hlutabréfamarkaðinn

Leiðir til að efla hlutabréfamarkaðinn er yfirskrift ráðstefnu sem fer fram í dag í Hörpu frá 13:30-16:00 og hægt er að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum hér að neðan. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) og Nasdaq Iceland standa að ráðstefnunni.

Hvernig stendur íslenskur hlutabréfamarkaður í alþjóðlegum samanburði og hvaða leiðir eru færar til að efla hlutabréfamarkaðinn? Hvað getum við lært af reynslu nágrannaþjóða okkar, sér í lagi Svía í þeim efnum? Leitast verður við að svara þessum spurningum og mörgum fleiri á ráðstefnunni. Þá verða kynntar niðurstöður könnunar Gallup um viðhorf almennings gagnvart fjárfestingum og hlutabréfakaupum. 

Dagskrá ráðstefnunnar:

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra – Ávarp ráðherra

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri – Mikilvægi markaðsfjármögnunar

Adam Kostyál, forstjóri Nasdaq Stockholm og framkvæmdastjóri skráninga Nasdaq í Evrópu – The Swedish experience: The ingredients and the importance of a well-functioning capital market.

Pallborðsumræður: Hvernig eflum við íslenskan hlutabréfamarkað?   

·       Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.

·       Tanya Zharov, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Alvotech.  

·       Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá.

·       Íris Björk Hreinsdóttir, yfirlögfræðingur SFF, stýrir umræðum.

Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland  –  Hversu þroskaður er íslenski hlutabréfamarkaðurinn?

Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF –​​​​​​  Kunna Íslendingar að spara? Niðurstöður könnunar Gallup um fjárfestingahegðun almennings.

Hafsteinn Hauksson, aðalhagfræðingur Kviku banka – Að heimta fé af fjalli: Fjárfestingarreikningar fyrir einstaklinga og virkjun sparnaðar í Evrópu.

Pallborðsumræður: Er almenningur lykilinn að virkari hlutabréfamarkaði?

·       Heiðar Guðjónsson fjárfestir.

·       Kristín Hrönn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Fjárfesta og fyrirtækja hjá Íslandsbanka.

·       Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs.

·       Snædís Ögn Flosadóttir, forstöðumaður á mörkuðum hjá Arion banka stýrir umræðum.

Fundarstjóri: Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF.

Beint streymi: