Fjármálavit og Red Start Education bera saman bækur sínar

Á dögunum heimsóttu fulltrúar Fjármálavits Red Start Education, góðgerðasamtökin um fjármálalæsi barna í Bretlandi með þann tilgang að styðja við börn í grunnskólum þegar kemur að fjármálalæsi og fylgja þeim eftir upp skólaþrepin.
Kristín Lúðvíksdóttir, verkefnastjóri Fjármálavits, fylgdist með fulltrúum samtakanna taka á móti ellefu ára grunnskólabörnum á vinnustofu um fjármál sem fram fór í höfuðstöðvum CIC bankans í London en starfsfólk bankans tók einnig þátt í vinnustofunni. Þar lærðu krakkarnir um mikilvægi þess að spara og samspil sparnaðar og tíma en fræðslan til krakkanna fer mikið til í gegnum leiki þar sem þau læra um tekjur, gjöld, sparnað, áhættu, ávinning og fleiri atriði tengd persónulegum fjármálum. Allri vinnu með krökkunum er fylgt eftir með skemmtilegum verkefnum heima svo þau nái einnig til foreldranna.

Framkvæmdastjóri samtakanna Sarah Marks heimsótti Ísland fyrr í vetur og kynnti sér þá m.a. starfsemi Fjármálavits en Red Start eru nú að gefa krökkunum í Bretlandi enska útgáfu kennslubókarinnar Fyrstu skref í fjármálum eftir Gunnar Baldvinsson sem Fjármálavit gefur grunnskólum hérlendis.