Fréttabréf SFF: Óheppileg skattahækkun, SFF dagurinn og sigurvegarar Fjármálaleikanna

Í nýútkomnu fréttabréfi SFF er farið um víðan völl, og meðal annars sagt frá SFF deginum sem fór fram miðvikudaginn 15. apríl, undir yfirskriftinni Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin. Nálgast má samantekt, myndbönd og glærur frá fundinum í gegnum fréttabréfið.
Þá er sagt frá viðbrögðum SFF og annarra við óvæntum áformum fjármála- og efnahagsráðherra um að auka álögur á fjármálafyrirtæki, en það var boðað í drögum að fjármálaáætlun Daða Más Kristóferssonar fyrir árin 2027-2031.
Eins er sagt frá sigurvegurum Fjármálaleikanna, áhugaverðum könnunum sem tengjast áhrifum gervigreindar á störf í fjármálakerfinu, mikilvægi þess að áhersla verði lögð á kennslu fjármálalæsis og ráðstefnu sem SFF héldu ásamt Nasdaq Iceland, þar sem fjallað var um möguleikann á upptöku fjárfestingarreikninga fyrir einstaklinga að sænskri fyrirmynd.

















.jpg)