Garðaskóli er sigurvegari Fjármálaleikanna 2026

Um 2000 nemendur í 50 grunnskólum þvert á landið spreyttu sig á fjölbreyttum og skemmtilegum spurningum um fjármál í Fjármálaleikum grunnskólanna sem fram fóru dagana 9. – 20. mars 2026.
Efstu þrjú sæti keppninnar skipa:
1. Garðaskóli
2. Grunnskóli Fjallabyggðar
3. Vogaskóli
Sem fyrr var mikil samkeppni um efstu sætin og er sérstaklega ánægjulegt að sjá góða þátttöku og liðsheild fjölmennra skóla.
Þrír efstu skólarnir fá peningaverðlaun auk þess sem Garðaskóli verður fulltrúi Íslands í Evrópukeppni í fjármálalæsi sem fer fram í Brussel 18. og 19. maí næstkomandi. Úr hópi allra þátttakenda voru þrír heppnir dregnir út sem fá 30.000 kr. hver og koma þeir úr Tjarnarskóla, Lundarskóla og Víkurskóla.
Fjármálavit og SFF óska sigurvegurunum og öllum þeim sem tóku þátt til hamingju með góðan árangur og þakkar fyrir þátttökuna – án þátttakenda er engin keppni!

„Við kennararnir í Garðaskóla erum mjög stoltir af nemendum okkar en það voru um 200 krakkar í 10. bekk sem tóku þátt í keppninni fyrir hönd skólans. Við tókum þá ákvörðun strax í haust að taka þetta föstum tökum. Við fundum að það var mikil samvinna meðal nemenda og það er einmitt það sem er gott, þau læra að ræða saman um fjármálin,“ segir Andri Rafn. „Við höfum alltaf tekið stóra og mikla lotu í 10. bekk í fjármálalæsi en erum nú farin að færa fræðsluna neðar í 8. og 9.bekk. Við sjáum að það munar miklu að krakkarnir séu komnir með grunn þegar þeir mæta í 10. bekk en þá er farið vel í bókina Fyrstu skref í fjármálum sem við fáum frá Fjármálaviti. Okkur hefur fundist áhugi nemenda vera fljótur að koma þegar þeir fá tækifæri til að læra um fjármálin og að gera þau persónuleg eins og að láta þau spara fyrir einhverju sem þau langar í og hvað felst í því að vera í vinnu og fá laun svo eitthvað fátt sé nefnt.“ segir Andri Rafn Ottesen, kennari í Garðaskóla.


Fjármálaleikarnir eru árleg netkeppni í fjármálalæsi, þar sem unglingadeildir grunnskólanna keppa sín á milli. Keppnin er haldin af Fjármálaviti, sem er fræðsluvettvangur SFF, með stuðningi frá Landssamtökum lífeyrissjóða.

















.jpg)