Í öðru sæti af Norðurlöndunum í fjármálalæsi

Kristján Oddur Kristjánsson og Dagur Thors nemendur í Austurbæjarskóla tóku á dögunum þátt í Evrópukeppni í fjármálalæsi fyrir Íslands hönd sem fram fór í Brussel á vegum Evrópsku banksamtakanna (EBF). Strákarnir höfnuðu í öðru sæti af Norðurlöndunum á eftir Finnlandi og 14. sæti í allri keppninni en það voru Grikkland, Pólland og Portúgal sem skipuðu þrjú efstu sætin. Til Brussel voru samankomnir fulltrúar 28 Evrópulanda sem unnið höfðu undankeppnir í sínu heimalandi þar sem yfir 45.000 nemendur á aldrinum 13 – 15 ára tóku þátt og þar af 1.500 nemendur í 10. bekk í 42 skólum hér á landi þar sem Austurbæjarskóli sigraði. Í Brussel svöruðu þátttakendur spurningum um þekkingu þeirra almennt á persónulegum fjármálum eins og um sparnað og lán og hvernig vextir spila þar inn í, um áhrif verðbólgu á virði peninga auk þess sem áherslan í ár var töluvert á mikilvægi netöryggis og að vara sig á netsvikum.Samtök fjármálafyrirtækja standa að undankeppninni hér á landi með Fjármálaleikunum í gegnum Fjármálavit sem er fræðsluvettvangur um fjármálalæsi og er tilgangurinn að veita kennurum innblástur í kennslu um fjármál og stuðla að auknu vægi fjármálalæsis í námskrá grunnskóla. Að sögn Kristínar Lúðvíksdóttur verkefnisstjóra Fjármálavits er markmiðið með keppni í fjármálalæsi fyrst og fremst að vekja athygli á mikilvægi fjármálalæsis hjá ungu fólki og hvetja kennara og skólastjórnendur áfram í kennslu í fjármálalæsi. „Það hefur verið gaman að fylgjast með strákunum í keppninni en Þeir voru glæsilegir fulltrúar Íslands í Brussel,“ segir Kristín.Þeir Kristján og Dagur voru vel undirbúnir fyrir keppnina í Brussel enda með góðan kennara sér við hlið, Sigrúnu Lilju Jónasdóttur sem hvatti þá vel áfram, en þetta er í annað skiptið sem hún fer með sigurvegara úr Austurbæjarskóla til Brussel í Evrópukeppnina. „Þetta var rosalega skemmtileg og lærdómsrík ferð. Það er mikill heiður að fá að keppa fyrir Íslands hönd og sérstaklega á svona stóru sviði. Við viljum þakka Sigrúnu og Kristínu fyrir frábæra ferð og allan undirbúninginn sem skilaði góðum árangri. Að lokum viljum við þakka bekkjarfélögum okkar fyrir vinnuna í íslensku keppninni því annars hefðum við aldrei fengið þetta tækifæri,“ segja þeir Dagur og Kristján.Sigrún Lilja er afar stolt af öllum krökkunum í 10. bekk Austurbæjarskóla sem með samstilltri vinnu unnu Fjármálaleikana sem fram fóru í mars síðastliðnum. Hún hefur fundið fyrir fyrir aukinni vakningu á mikilvægi fjármálalæsis undanfarin misseri og segir að auka megi vægi þess í aðalnámskrá grunnskóla. „Ég tel ástæðuna fyrir góðu gengi skólans í Fjármálaleikunum undanfarin ár vera að í Austurbæjarskóla er snemma lögð áhersla á prósentureikning og þegar komið er í 10. bekk eru krakkarnir komnir með nokkuð góðan grunn,“ segir Sigrún Lilja.„Ég er afar stolt af þeim Kristjáni og Degi sem hafa undirbúið sig vel fyrir keppnina og stóðu sig frábærlega,“ segir Sigrún Lilja að lokum.