Ísland efst Norðurlandanna í Evrópukeppninni í fjármálalæsi

Bergþóra Emma Sigurðardóttir Johnsen og Alexander Kiljan Helgason voru fulltrúar Íslands og samnemenda sinna í 10. bekk Garðaskóla í Evrópukeppninni í fjármálalæsi sem fram fór í maí. Sextíu spenntir unglingar frá 30 löndum mættu til leiks ásamt kennurum sínum. Íslenska liðið hafnaði í 12.sæti af 30 og var efst meðal Norðurlandanna. Evrópumeistararnir í ár voru Grikkir.
Evrópsku bankasamtökin (EBF) standa að keppninni í Brussel en Garðaskóli hafði unnið sér inn þátttökurétt með sigri Fjármálaleikanna í mars síðastliðnum þar sem 2000 nemendur í 50 grunnskólum landsins kepptu um Íslandstitilinn í fjármálalæsi.
Það var mikill metnaður meðal keppenda í Evrópuúrslitunum í Brussel og spennan mikil, en spurningarnar spönnuðu vítt svið um persónuleg fjármál allt frá sparnaði, lánum, vöxtum og áhrifum verðbólgu á virði peninga yfir í fjárfestingar, áhættu, rafmyntir og netöryggi.
Íslensku keppendurnir úr Garðaskóla voru vel undirbúnir fyrir keppnina í Brussel enda með góðan kennara sér við hlið, Rósönnu Andrésdóttur sem hvatti krakkana vel áfram.
„Ég er afar stolt af krökkunum, þau komu vel undirbúin í keppnina, stóðu sig frábærlega og voru glæsilegir fulltrúar Íslands. Bergþóra og Alexander voru valin sem fulltrúar yfir 200 nemenda í 10. bekk Graðaskóla sem í sameiningu náði þessum frábæra árangri“ segir Rósanna.

Skemmtileg og lærdómsrík ferð
„Þetta var rosalega skemmtileg og lærdómsrík ferð. Það er mikill heiður að fá að keppa fyrir Íslands hönd og sérstaklega á svona stóru sviði. Við viljum þakka árganginum okkar fyrir samvinnuna í íslensku keppninni því annars hefðum við aldrei fengið þetta tækifæri í Brussel. Við teljum að allir krakkar eigi að læra um fjármál í skóla, því það er mikilvægt að læra hvernig fara á vel með peninga og að undirbúa sig fyrir framtíðina“ segja þau Alexander og Bergþóra.
Þetta er í 9. skiptið sem Evrópukeppnin er haldin og hefur Ísland verið með frá upphafi. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu standa að undankeppninni hér á landi með Fjármálaleikunum í gegnum Fjármálavit sem er fræðsluvettvangur um fjármálalæsi. Tilgangurinn er að veita kennurum innblástur í kennslu um fjármál og stuðla að auknu vægi fjármálalæsis í grunn- og framhaldsskólum. Fjármálavit er einnig stutt af Landssamtökum lífeyrissjóða.
Undirstrikar mikilvægi fjármálalæsis
Að sögn Kristínar Lúðvíksdóttur verkefnastjóra Fjármálavits er markmiðið með keppni í fjármálalæsi fyrst og fremst að vekja athygli á mikilvægi þess hjá ungu fólki og hvetja kennara og skólastjórnendur áfram í kennslu í fjármálalæsi.
„Það hefur verið gaman að fylgjast með þeim Bergþóru og Alexander í keppninni en þau voru glæsilegir fulltrúar Íslands í Brussel,“ segir Kristín.

%20(1920%20x%201080%20px)%20(1).jpg)













