Yfir 90% telja mikilvægt að gera fjármálalæsi að skyldufagi

Rúmlega 9 af hverjum 10 telja skipta miklu máli að fjármálalæsi verði gert að skyldufagi í grunnskólum landsins. Þetta kemur í ljós í niðurstöðum könnunar sem Gallup gerði fyrir SFF.

Spurt var: Hversu miklu eða litlu máli telur þú skipta að fjármálalæsi verði skyldufag í grunnskólum landsins?

Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 91,7% telja að það skipti miklu máli, en aðeins 3,1% litlu eða engu máli. Þá sögðu 5,2% hvorki né. Ef aðeins eru taldir þeir þátttakendur sem sögðust annað hvort telja þetta skipta litlu eða miklu máli voru 96,7% sem sögðust telja miklu máli skipta að fjármálalæsi yrði gert að skyldufagi í grunnskólum landsins.

Einnig tóku þátttakendur afstöðu til þess hvar þeim þætti almennt að fólk ætti að læra mest um peninga og fjármál, sem og hvar þeir sjálfir hafi fengið fræðslu í málaflokknum.

Þar sögðust 81,1% telja að fólk ætti að fá slíka fræðslu í grunnskóla, en aðeins 12,3% sögðust hafa fengið slíka fræðslu þar. Þá sögðust 75,4% telja að slíka fræðslu ætti að bjóða upp á í framhaldsskólum, en aðeins 19,8% sögðust hafa gert það sjálf í framhaldsskóla.

Aðeins 13% sögðust telja að fólk ætti að læra um fjármál á samfélagsmiðlum, í fjölmiðlum eða á netinu, en 43,3% sögðust hins vegar hafa fengið fjármálafræðslu á þeim vettvangi.

Öll börn fái tækifæri til að byggja upp heilbrigðan fjárhag

Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF, fjallaði um niðurstöður könnunarinnar í Vikublaðinu á dögunum. Í grein hennar kom meðal annars fram að fjármálalæsi fæli í sér hæfni til að skilja peninga, tekjur, útgjöld, sparnað, lán og aðra þætti sem snúa að persónulegum fjármálum, og lagði áherslu á að slík hæfni væri til þess fallin að auka líkur á að börn nái fjárhagslegu öryggi og geti byggt heilbrigðan fjárhag á grunni upplýstra ákvarðana.

Þá vekur Heiðrún athygli á því að OECD hafi lagt áherslu á að gera þurfi fjármálalæsi að skyldu í grunnskólum. Öll börn eigi að hafa aðgang að kennslu í fjármálum, óháð félagslegri stöðu eða uppruna sínum.

Í sumum skólum sé fjármálalæsi skyldufag og kennt með samræmdum og heildrænum hætti. Aðrir skólar hafi fjármálalæsi sem valfag og ekki komist allir að. En í of mörgum skólum sé hreinlega ekki boðið upp á kennslu í fjármálalæsi með heildrænum hætti.

„Samfélagið okkar breytist hratt og það er mikil neysla og samfélagsleg pressa á börnin okkar. Með því að tryggja öllum börnum grundvallarþekkingu í fjármálum getum við tekið skref í þá átt að jafna stöðu allra barna til að byggja upp heilbrigðan fjárhag, óháð bakgrunni og skólahverfi.“