Fjármálalæsi barna og ungmenna er þjóðþrifamál

Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF, og Kristín Lúðvíksdóttir, verkefnastjóri Fjármálavits, voru til viðtals í Bítinu á Bylgjunni síðastliðinn föstudag. Þar ræddu þær um mikilvægi þess að fjármálalæsi verði gert að skyldufagi í grunn- og framhaldsskólum.
Í viðtalinu komu þær inn á að fjármálalæsi væri þegar kennt í mörgum skólum, og að víða væri vel staðið að kennslunni. Þrátt fyrir það megi gera betur og tryggja að öll börn fari út í lífið með grundvallarþekkingu í fjármálum.
Heiðrún og Kristín vísuðu meðal annars til nýlegrar könnunar Gallup, þar sem kom fram að um 11% fólks sagðist hafa lært um fjármálalæsi í skólum, en um 74% teldu eðlilegt að slík kennsla væri í boði í skólum.
Þá benti Heiðrún á að aðaláherslan yrði að vera á að öll börn fái tækifæri til að byggja upp heilbrigðan fjárhag.
„Þetta er tæki til að jafna stöðu allra barna. Það er rétt rúmur helmingur barna sem er að læra um fjármál frá foreldrum sínum. En hvað þá um hinn helminginn? Stór hluti barna er þá að læra um fjármál á netinu og þar er hætta á bara svikum. Það eru meiri líkur á að það sé verið að kenna þér að taka skyndilán eða skammtímalán og það er mikil samfélagspressa,“ sagði Heiðrún meðal annars.
.jpg)






%20(300%20x%20200%20px)%20(2).jpg)







