Gamlársdagur ekki lengur viðskiptadagur

SFF vekja athygli á breytingum á reglum nr. 1030/2020, um milligreiðslukerfi Seðlabanka Íslands, sem birtar voru í Stjórnartíðindum þann 13. ágúst, sjá nánar hér.

Breytingar á reglunum fela í sér að gamlársdagur verði framvegis ekki viðskiptadagur hjá Seðlabankanum. Lokað verður fyrir viðskipti í stórgreiðslukerfi Seðlabanka Íslands og á millibankamörkuðum með gjaldeyri og krónur þann dag. Kortauppgjörskerfi Seðlabankans verður jafnframt lokað. Verðbréfauppgjörskerfi hafa hingað til verið lokuð á gamlársdag.

Í frétt á heimasíðu Seðlabanka Íslands vegna þessa kemur fram að ljúka þurfi greiðslum sem eiga að tilheyra árinu 2025 eigi síðar en hinn 30. desember nk. Kröfur sem þurfa að greiðast á árinu 2025 þurfa jafnframt að hafa eindaga eigi síðar en þriðjudaginn 30. desember. Allar færslur gerðar 31. desember 2025 verða bókaðar 2. janúar 2026.