Hærri skattar, töpuð tækifæri? - 14. september

Hærri skattar, töpuð tækifæri? er yfirskrift viðburðar sem Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu standa fyrir þann 14. september næstkomandi.  

Hvar stendur íslenskt fjármögnunarumhverfi og í hvaða átt stefnir það? Hvaða áhrif hafa skattar, regluverk og aðgerðir stjórnvalda í þeim efnum? Hvar liggja framtíðartækifærin til að fjármagna íslenskt atvinnulíf í átt til bættra lífskjara? Hversu mikil áhrif hefur fyrirsjáanleiki í skattlagningu og reglusetningu á samkeppnishæfni Íslands? Þessum spurningum og mörgum fleiri verður velt upp á ráðstefnunni auk þess að fjallað verður um skatta á íslenska banka í alþjóðlegum samanburði.

Þátttakendur á fundinum verða:

Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður efnahags- og viðskiptanefndar
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Ellert Arnarson, fjármálastjóri Amaroq Minerals
Dr. Gunnar Haraldsson, hagfræðingur og stofnandi Intellecon
Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins
Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri Arion banka 
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka
Lars Christensen, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Ipace
Lev Ratnovski, hagfræðingur hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
Reynir Stefán Gylfason, endurskoðandi og meðeigandi hjá KPMG
Sigríður Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins
Tanya Zharov, lögfræðingur og nefndarmaður í atvinnustefnuráði stjórnvalda

Þar að auki verða pallborðsumræður á fundinum þar sem lykilfólk úr íslensku atvinnulífi og stjórnmálum mun fara yfir stöðuna.

Fundarstjóri verður Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF.

Fundurinn hefst kl. 9 í Smárabíói, mánudaginn 14. september. Húsið opnar kl. 8:30. Fundurinn er opinn öllum en skráning hér að neðan er nauðsynleg.