Íslensk fjártækni á tímamótum

Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Íslandsstofa stóðu í lok maí fyrir viðburði um stöðu og framtíð fjártækni á Íslandi, í samstarfi við Reykjavík Fintech.
Þar voru kynntar helstu niðurstöður nýrrar kortlagningar á íslenska fjártæknigeiranum. Northstack sá um kortlagninguna fyrir SFF og Íslandsstofu, með stuðningi frá Reykjavík Fintech. Markmiðið var að varpa ljósi á íslenskt fjártækniumhverfi, styrkleika þess, áskoranir og tækifæri til framtíðar. Kortlagninguna má nálgast hér.
Eszter Czibor, rannsóknastjóri hjá Northstack, fór yfir niðurstöður kortlagningarinnar og stöðu íslenskrar fjártækni í alþjóðlegu samhengi.
Fulltrúar íslensks atvinnulífs tóku einnig þátt í viðburðinum og deildu reynslu sinni og sýn á þróun markaðarins. Ólöf Jónsdóttir frá Íslandsbanka fjallaði um innleiðingu gervigreindar í fjármálaþjónustu, Garðar Karl frá Myntkaupum ræddi þróun stafrænnar fjármálaþjónustu og þau tækifæri sem felast í tæknivæðingu eigna og stafrænum innviðum, og Bergur Ebbi Benediktsson, einn stofnenda Spesíu, velti fyrir sér ímynd fjármálageirans og þeim breytingum sem eru fram undan í samskiptum almennings við fjármálaþjónustu.
Viðburðurinn var vel sóttur og líflegar umræður sköpuðust um þróun fjártækni hér á landi, mikilvægi nýsköpunar og tækifærin sem íslensk fyrirtæki hafa til þess að vaxa á alþjóðlegum mörkuðum.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir sem Sunna Ben tók á viðburðinum.









%20(1920%20x%201080%20px)%20(1).jpg)













