Skjótur viðbragðstími skiptir mestu í svikamálum

Að bregðast hratt við grunsamlegum færslum eða þegar ljóst er að fólk hefur orðið fyrir fjársvikum getur verið lykillinn að því að endurheimta fjármuni frá svikahröppum. Enginn munur er á endurheimt fjármuna eftir því hvort lögaðilar eða einstaklingar verða fyrir svikunum, heldur ráða viðbragðstími og eðli svika þar mestu.

Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF, ræddi þessi mál í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni á dögunum. Þar var hún spurð hvort munur væri á möguleikum á að endurheimta fjármuni sem glatast hafa í hendur svikahrappa, annars vegar í tilfelli fjármálafyrirtækja og hins vegar í tilfelli viðskiptavina.

„Það á ekki að vera munur á því hvort þetta sé banki eða einstaklingar. Það sem mestu máli skiptir er að bregðast mjög skjótt við. Það er það sem við erum alltaf að segja fólki: Ef það verður vart við eitthvað undarlegt, að hafa strax samband við bankann sinn og lögreglu,“ sagði Heiðrún í viðtalinu.

Þá skipti einnig máli hvers kyns svik væri um að ræða hverju sinni. Skipulagðir glæpahópar stundi það að færa fjármuni milli reikninga og landa, og taka að endingu út. Hægt sé að rekja rafræn spor þeirra, en stundum reynist erfitt eða tímafrekt að fá heimildir til þess þegar fjármunir eru fluttir á milli landa.

„Ef þeir eru snöggir að taka þá út, þá eru þeir bara horfnir,“ segir Heiðrún og leggur áherslu á að skjótur viðbragðstími geti gert gæfumuninn.

Heiðrún segir fólk sífellt verða fyrir barðinu á svikurum. Þrátt fyrir að innan banka starfi öflugur hópur fólks sem vinni gott starf til að koma í veg fyrir svik komi það fyrir, enda sé tæknin til árása að eflast samhliða vörnum.

„Enn og aftur: Alltaf að sýna aðgát og ef eitthvað er of gott til að vera satt að fara þá sérstaklega varlega, passa alla hlekki og annað slíkt,“ sagði Heiðrún.

Þá sagði hún afar mikilvægt að fólk tæki ekki við fjármunum sem það veit ekki hvaðan eru komnir.

„Ef þetta er illa fengið fé er hætta á því að fólk sé að verða hlutdeildaraðilar í brotum,“ segir Heiðrún. Oft reyni svikarar að koma upphæðum yfir á kunningja sína til þess að fela slóð sína.

„Það sem er erfiðara er þegar þetta fer á milli margra landa, þótt við séum í mjög góðu samstarfi við lögreglu og verið sé að skiptast á svikavörnum og upplýsingum á milli landa. Þetta verður alltaf betra og betra og það er verið að stoppa mjög mörg mál, en því miður verða alltaf einhverjir fyrir svikum.“

Viðtalið við Heiðrúnu má heyra í spilaranum hér að ofan.

Í nóvember síðastliðnum réðust SFF í herferð til þess að vekja athygli fólks á hættunum sem leynast á netinu og algengum aðferðum svikara til þess að hafa fjármuni af fólki. Hér má til að mynda finna sérstakt netsvikapróf, þar sem fólk getur séð svart á hvítu hvar það stendur gagnvart mögulegum svikatilraunum, auk almennra heilræða þegar kemur að svikavörnum.