Fréttabréf SFF: Illa ígrunduð skattahækkun og vaxandi traust til fjármálafyrirtækja

Í nýju fréttabréfi SFF kennir ýmissa grasa. Þar er meðal annars fjallað um þau fjölmörgu rök sem standa gegn fyrirhugaðri skattahækkun á fjármálafyrirtæki, sem boðuð hefur verið af hálfu fjármála- og efnahagsráðherra.
Fjallað er um vaxandi traust til fyrirtækja í fjármálageiranum, en ný könnun leiðir í ljós að á síðustu árum hefur traust til banka, tryggingafélaga og fjármálageirans í heild aukist svo um munar. Jafnframt er sagt frá niðurstöðum könnunar sem leiðir í ljós að rúmlega níu af hverjum tíu telja mikilvægt að fjármálalæsi verði gert að skyldufagi í grunnskólum landsins.
Eins er sagt frá nýrri skýrslu Northstack, sem unnin var fyrir SFF og Íslandsstofu, um íslenska fjártækni, umhverfi greinarinnar og tækifæri til framtíðar. Skýrslan var kynnt á SFF deginum þann 15. apríl, en í fréttabréfinu er einnig að finna samantekt frá deginum.
















