Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? - 10. febrúar kl. 8:30
.jpg)
Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? er yfirskrift ráðstefnu sem fer fram þriðjudaginn 10. febrúar í Arion banka, Borgartúni 19, frá kl. 8:30 til 10:30. Húsið opnar kl. 8:15.
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) og Nasdaq Iceland standa að ráðstefnunni.
Fjallað verður um möguleikann á að innleiða fjárfestingarreikninga fyrir einstaklinga hér á landi, líkt og gefið hefur góða raun annars staðar, t.d. í Svíþjóð. Markus Mild, sérfræðingur hjá Nasdaq, mun segja frá reynslu Svía af innleiðingu slíkra reikninga, og ávinningnum sem hlaust af.
Hvernig þyrftu Íslendingar að bera sig að við innleiðingu slíkra reikninga? Hverju geta þeir skilað okkur og hverju þarf að breyta þannig að hlutabréf verði meira aðlaðandi í augum almennings sem ávöxtunarleið? Gætu fjárfestingarreikningar verið lykillinn að því? Leitast verður við að svara þessum spurningum, ásamt öðrum, á ráðstefnunni.
Dagskrá ráðstefnunnar:
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra – Ávarp ráðherra
Markus Mild, sérfræðingur hjá Nasdaq - The Swedish Investment Savings Account and the financial ecosystem
Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika - Má bæta miðlun sparnaðar?
Jóhann Möller, framkvæmdastjóri markaða hjá Arion banka - Óskalistinn
Guðbjörg Þorsteinsdóttir, lögmaður og meðeigandi á Deloitte Legal - Hvaða áhrif hafa skattar á fjárfestingar og sparnað einstaklinga?
Kristín Hildur Ragnarsdóttir, frá Fortuna Invest - Fjárfestingar í augnhæð
Kristrún Tinna Gunnarsdóttir, ráðgjafi - Gerum hollar ákvarðanir auðveldari
Fundarstjóri verður Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland. Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka og formaður SFF, setur fundinn.
Viðburðurinn er öllum opinn en skráning er nauðsynleg hér að neðan.







%20(300%20x%20200%20px)%20(2).jpg)







