Sterk staða íslenskrar fjártækni dregin fram í nýrri skýrslu

Ný skýrsla, sem unnin var af Northstack fyrir Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Íslandsstofu, í samstarfi við Reykjavík Fintech, dregur upp ítarlega mynd af stöðu íslenskrar fjártækni og þeim tækifærum sem felast í greininni. Skýrslan ber yfirskriftina Fintech Iceland 2026: An ecosystem review and map og sýnir hraðan vöxt geirans á undanförnum árum. Höfundar skýrslunnar eru Rszter Czibor og Kristinn Árni Lár Hróbjartsson hjá Northstack.
Skýrslan, sem var kynnt og gefin út á SFF deginum fyrr í mánuðinum, leiðir í ljós að á Íslandi eru starfandi 76 fjártæknifyrirtæki, en það er hæsta hlutfall slíkra fyrirtækja á Norðurlöndum miðað við íbúafjölda. Hjá fyrirtækjunum starfa 930 manns, á tíu ólíkum sviðum innan fjártæknigeirans.
Í skýrslunni er rakið að fjártæknigeirinn hefur eflst verulega með tilliti til útflutnings, en árið 2024 var samanlagður hagnaður fyrirtækjanna um 9 milljarðar króna og 55% tekna þeirra komu frá erlendum mörkuðum.
Þá leiðir skýrslan í ljós að íslenskt rekstrarumhverfi hentar vel til vaxtar fjártæknifyrirtækja. Smæð hagkerfisins sé kostur við þróun nýrra lausna, þar sem Ísland sé góður tilraunamarkaður áður en sótt er á stærri markaði erlendis. Þar að auki séu stafrænir innviðir hér á landi sterkir, sem styðji við nýsköpun.
Í skýrslunni er einnig litið til framtíðar, og því spáð að næsta vaxtarskeið íslenskrar fjártækni muni sennilega snúa að aukinni notkun gervigreindar og opnum bankalausnum. Gervigreind geti nýst við gerð áhættumats, sjálfvirknivæðingu og greiningu á hegðun viðskiptavina.
Þar að auki er fjallað um áskoranir sem geirinn stendur frammi fyrir, þrátt fyrir jákvæða þróun síðustu ára. Takmarkað aðgengi að fjármagni á sumum stigum, samkeppni um hæft starfsfólk og þörf á að laga regluverk í sífellu að nýjum lausnum og alþjóðlegum kröfum eru þar efst á baugi.
Niðurstöður skýrslunnar benda til þess að íslenskur fjártæknigeiri standi á traustum grunni og hafi góðar forsendur til frekari vaxtar á komandi árum.
Hér má nálgast samantekt um skýrsluna á íslensku.















