Traust til fjármálafyrirtækja hefur stóraukist á síðustu árum

Ný Gallup-könnun sem unnin var fyrir Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu sýnir að traust almennings til fjármálafyrirtækja hefur aukist verulega og að niðurstöðurnar eru þær jákvæðustu frá því mælingar hófust árið 2010. Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar á SFF-deginum, ársfundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, þann 15. apríl.
Mest traust mælist til aðalviðskiptabanka, traust til fjármálafyrirtækja almennt hefur tekið stórt stökk upp á við og traust til aðaltryggingafélags hefur einnig aukist skýrt. Könnunin var framkvæmd dagana 12.–24. mars 2026.
Könnunin sýnir að traust til fjármálafyrirtækja hér á landi almennt hefur aukist verulega og er nú meira en nokkru sinni áður frá upphafi mælinga. Alls segjast 37,9% bera mikið traust til fjármálafyrirtækja almennt, 32,0% eru hvorki né og 30,1% bera lítið eða ekkert traust. Árið 2023 sögðust um 10% bera mikið traust til fjármálafyrirtækja almennt og því eru nú um fjórfalt fleiri en áður sem segjast bera mikið traust til fjármálafyrirtækja.
Það sem vekur sérstaka athygli er að nú bera fleiri mikið traust en lítið traust til fjármálafyrirtækja almennt en lítið traust í fyrsta sinn frá því könnunin var fyrst framkvæmd.
Traust til aðal viðskiptabanka aðspurðra hefur einnig aukist verulega. Alls segjast 66,2% bera mikið traust til síns aðalviðskiptabanka, 21,9% eru hvorki né og 11,8% bera lítið eða ekkert traust.
Traust til aðaltryggingafélags hefur sömuleiðis aukist og mælist nú meira en áður í þessum könnunum. Alls segjast 58,4% bera mikið traust til síns aðaltryggingafélags, 28,2% eru hvorki né og 13,3% bera lítið eða ekkert traust.
Niðurstöðurnar sýna að traust almennings til fyrirtækja í fjármálaþjónustu hefur batnað verulega frá síðustu mælingu. Sérstaklega er athyglisvert að traust til fjármálafyrirtækja almennt hefur tekið stórt stökk upp á við og er það mesta frá því könnunin var fyrst gerð árið 2010.















