Leiðir til að efla hlutabréfamarkaðinn - 6. nóvember kl 13:30
.jpg)
Leiðir til að efla hlutabréfamarkaðinn er yfirskrift ráðstefnu sem fer fram fimmtudaginn 6. nóvember í Norðurljósum, Hörpu frá 13:30-16:00. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) og Nasdaq Iceland standa að ráðstefnunni.
Hvernig stendur íslenskur hlutabréfamarkaður í alþjóðlegum samanburði og hvaða leiðir eru færar til að efla hlutabréfamarkaðinn? Hvað getum við lært af reynslu nágrannaþjóða okkar, sér í lagi Svía í þeim efnum? Leitast verður við að svara þessum spurningum og mörgum fleiri á ráðstefnunni. 
Þá verða kynntar niðurstöður könnunar Gallup um viðhorf almennings gagnvart fjárfestingum og hlutabréfakaupum.
Dagskrá ráðstefnunnar:
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra – Ávarp ráðherra
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri – Gamla sagan um markaðinn
Adam Kostyál, forstjóri Nasdaq Stockholm og framkvæmdastjóri skráninga Nasdaq í Evrópu – The Swedish experience: The ingredients and the importance of a well-functioning capital market.
Pallborðsumræður: Hvernig eflum við íslenskan hlutabréfamarkað?
· Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
· Tanya Zharov, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Alvotech.
· Þórður Pálsson, forstöðumaðurfjárfestinga hjá Sjóvá.
· Íris Björk Hreinsdóttir, yfirlögfræðingur SFF, stýrir umræðum.
Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland – Hversu þroskaður er íslenski hlutabréfamarkaðurinn?
Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF – Kunna Íslendingar að spara? Niðurstöður könnunar Gallup um fjárfestingahegðu nalmennings.
Hafsteinn Hauksson, aðalhagfræðingur Kviku banka – Að heimta fé af fjalli: Fjárfestingarreikningar fyrir einstaklinga og virkjunsparnaðar í Evrópu.
Pallborðsumræður: Er almenningur lykilinn að virkari hlutabréfamarkaði?
· Heiðar Guðjónsson fjárfestir.
· Kristín Hrönn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Fjárfesta og fyrirtækja hjá Íslandsbanka.
· Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs.
· Snædís Ögn Flosadóttir, forstöðumaður á mörkuðum hjá Arion banka stýrir umræðum.
Fundarstjóri: Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF.
Boðið verður upp á léttar veitingar að fundi loknum.




.jpg)



.jpg)
%20(1000%20x%201000%20px).jpg)
.jpg)



.jpg)
